Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands

Leiðandi sérfræðingur á Heilbrigðisþjónustusviði

Vilt þú vinna í spennandi og síbreytilegu umhverfi þar sem þú tekur þátt í að þróa og efla íslenska heilbrigðisþjónustu?

Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.

Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað, fagmennsku og liðsheild. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma auk þess sem starfsfólk nýtur hlunninda á borð við íþróttastyrk og samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.

Sjúkratryggingar auglýsa starf leiðandi sérfræðings á Heilbrigðisþjónustusviði. Heilbrigðisþjónustusvið sér um framkvæmd samninga vegna heilbrigðisþjónustu, s.s. vegna þjónustu sjúkrastofnana, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks, sjúkraflutninga o.fl. Í undirbúningi eru stór og mikilvæg verkefni tengd þróun heilbrigðisþjónustu, þ.m.t. þarfa- og kostnaðargreiningar vegna lykilsamninga sem Sjúkratryggingar gera.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn verkefnastjórnun 
  • Úttektir og skýrslugerð vegna framkvæmda samninga
  • Þátttaka í þarfa- og kostnaðargreiningu heilbrigðisþjónustu 
  • Þátttaka í mótun stafrænnar þjónustu
  • Samstarf við aðrar stofnanir og veitendur heilbrigðisþjónustu 
  • Leiðbeiningar og ráðgjöf til starfsfólks og viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði hagfræði, heilsuhagfræði, verkfræði  eða viðskiptafræði er kostur
  • Reynsla af eða þekking á heilbrigðismálum er kostur
  • Reynsla af stjórnun/umsjón verkefna er æskileg
  • Reynsla af gagnavinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga er æskileg
  • Reynsla af vinnu með gervigreind er æskileg
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í mæltu og rituðu máli
  • Lipurð í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, metnaður og vönduð vinnubrögð
  • Geta til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi
Utworzono ofertę pracy13. June 2025
Termin nadsyłania podań3. July 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.UczciwośćPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Administracja publicznaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektem
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia