Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands

Leiðandi sérfræðingur í fjármálum

Hagstofa Íslands leitar að áhugasömum leiðandi sérfræðingi í afleysingu í fjármáladeild Hagstofu Íslands.

Starfið felst í að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði fjármála sem snúa að ferlum, greiningum, fjármálastjórnun og áætlunum. Starfið felur í sér þátttöku í daglegum rekstri, fjárhagsuppgjörum og skýrslugerð, auk þess að koma að þróun gagnaumhverfis og umbótaverkefna. Starfið er unnið í fámennu teymi fjármála í samstarfi við framkvæmdastjórn og mannauðsstjóra. Lögð er áhersla á sterka greiningarfærni, gott skipulag og góða samskiptafærni auk þess sem lögð er áhersla á leiðtogahæfni og reynslu af verkefnisstjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð þekking og reynsla af ársreikningum, reikningshaldi og áætlanagerð
  • Þekking og reynsla af fjármálastjórn og reikningshaldi í ríkisrekstri
  • Reynsla af vinnu í bókhaldskerfum ríkisins, s.s. Orra
  • Haldgóð þekking á kostnaðarmati og samningagerð
  • Þekking og reynsla af greiningu fjármálagagna
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Þrautseigja og lausnamiðuð hugsun
  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
  • Geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Haldgóð reynsla af stjórnun stærri verkefna

Hvað býður Hagstofan upp á?

  • Krefjandi og spennandi verkefni
  • Vinnu í samfélagslega mikilvægu hlutverki
  • Skemmtilegt samstarfsfólk
  • Gott mötuneyti
  • Íþróttastyrk
  • Samgöngustyrk
  • Sveigjanlegan vinnutíma
  • Möguleika til fjarvinnu að hluta
  • Hjólageymslu og bílastæði

Um er að ræða fullt starf í afleysingu til árs. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2026 og skal sótt um á ráðningarvef ríkisins, www.starfatorg.is

Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem ítarlega er gerð grein fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út. Öll kyn eru hvött til að sækja um. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Hagstofu Íslands við ráðningar í störf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóda Elín V. Margrétardóttir, [email protected].

Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Leiðarljós starfseminnar eru þjónusta, áreiðanleiki og framsækni. Hagstofan er staðsett í lifandi umhverfi í Borgartúninu, starfsumhverfið er jákvætt, fjölskylduvænt og sveigjanlegt og við höfum öflugt starfsmannafélag. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is

Utworzono ofertę pracy10. April 2026
Termin nadsyłania podań20. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Borgartún 21A, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Sprawozdanie finansowePathCreated with Sketch.PlanowaniePathCreated with Sketch.BudżetowaniePathCreated with Sketch.Praca zarobkowaPathCreated with Sketch.NegocjacjePathCreated with Sketch.Sprawozdanie finansowe
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe