
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Kjararáðgjafi á mannauðs- og kjaradeild
Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf kjararáðgjafa á mannauðs- og kjaradeild. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Mannauðs- og kjaradeild heyrir undir fjármála- og stjórnsýslusvið. Á deildinni er ávallt lagt upp með að vera með rafrænar lausnir og lausnamiðað vinnulag. Verkefni eru unnin í teymi og áhersla lögð á gott upplýsingaflæði milli starfsmanna. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, frumleika, þjónustulund og sjálfstæði í áhugaverðum verkefnum í góðu samfélagi Garðabæjar.
Hjá Garðabæ starfar samhentur hópur starfsmanna með mikinn metnað til að veita íbúum framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum og auðga mannlíf og bæjarbrag.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Launavinnsla og verkefni tengd kjarasamningum
- Fjölbreytt greiningarvinna og úrvinnsla
- Verkefni tengd mannauðsmálum
- Aðkoma að vinnu við launaáætlun
- Vinna við ferlagerð í starfsmanna- og stjórnendahandbók
- Þjónusta við stjórnendur og þjálfun vegna rafrænna kerfa
- Önnur fjölbreytt verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi greiningarhæfni
- Framúrskarandi excel þekking
- Hæfni til að vinna í teymi
- Frumkvæði og sjálfstæði ásamt nákvæmni og talnagleggni
- Lausnamiðuð hugsun og geta til að leysa úr frávikum sem upp koma í daglegum störfum
- Faglegt viðmót og einstök hæfni til samskipta
- Mjög góð alhliða tölvuþekking
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Enskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Þekking á gæðamálum er kostur
- Þekking á H3, Vinnustund og Vinnu vaktakerfi er kostur
Hlunnindi
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Utworzono ofertę pracy15. August 2025
Termin nadsyłania podań1. September 2025
Znajomość języków

Wymagane

Wymagane
Lokalizacja
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Rodzaj pracy
Kompetencje
InicjatywaAnalitykaPraca zarobkowaMicrosoft ExcelSamodzielność w pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (5)

Pípulagningarmaður eða reynslumikill einstaklingur
Garðabær

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir einstaklingi til að sinna stöðu snemmtækrar íhlutunar
Garðabær

Krókamýri, heimili fatlaðs fólks óskar eftir starfsfólki
Garðabær

Hress og drífandi einstaklingur óskast í stuðning
Garðabær

Heimilisfræðikennari í Garðaskóla
Garðabær
Podobne oferty pracy (12)

Sérfræðingur í alþjóðasamskiptum - alþjóðafulltrúi
Skatturinn

Fulltrúi í mannauðstengdum verkefnum
Byko

Viðskiptastjóri Billboard
Billboard og Buzz

Mannauðs og launafulltrúi
Grundarheimilin

Tjónaráðgjafi í tjónaþjónustu
VÍS

Þjónustufulltrúi
Terra hf.

Staða ritara
Sálstofan ehf.

Sérfræðingur í innkaupum
Landsnet hf.

Heilbrigðisfulltrúi - Vesturland
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

Starfsmaður í Skátaheimili Hraunbúa
Skátafélagið Hraunbúar

Sölu- og þjónustufulltrúi á skrifstofu
Casalísa

Lögmaður hjá borgarlögmanni - tímabundið til eins árs
Embætti borgarlögmanns