Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Jákvætt og hjartahlýtt starfsfólk óskast í viðbragðsteymi

Hefur þú brennandi áhuga á að vinna með fólki við fjölbreyttar aðstæður? Þá erum við að leita af þér. Norðurmiðstöð óskar eftir hressu og umhyggjusömu starfsfólki til starfa í viðbragðsteymi heimaþjónustu. Um er að ræða hlutastörf á dagvinnutíma og er ráðningartímabil samkomulag.

Starfsfólk óskast til starfa í viðbragðsteymi heimaþjónustu. Um er að ræða hlutastörf í dagvinnu og er ráðningartímabil samkomulag. Starfshlutfall getur verið 40-80% eða eftir samkomulagi. Starfið hentar vel með námi, s.s. á félags-, heilbrigðis- eða menntavísindasviði.

Áhersla er lögð á að veita persónumiðaða og sveigjanlega þjónustu sem stuðlar að auknu sjálfstæði og virkri samfélagsþátttöku. Í teyminu starfar þéttur og samheldinn starfsmannahópur og tökum við vel á móti nýju starfsfólki.

Starfið býður upp á fjölbreyttar áskoranir. Unnið er á heimilum notenda þar sem mikil þörf er á aðstoð og geta notendur átt við geðræn veikindi og/eða fíknivanda að stríða. Mikilvægt er að viðkomandi treysti sér í að sinna verkefnum inni á heimilum við krefjandi aðstæður.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Sótt er um starfið í gegnum umsóknarvef Reykjavíkurborgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða notendur við tiltekt, þrif og/eða skipulagningu á heimilum þar sem veruleg þörf er á og áður en almenn félagsleg heimaþjónusta getur hafist.
  • Veita félagslegan stuðning og hvatningu er varðar umhirðu heimilis og/eða persónulega umhirðu, ásamt því að styðja notendur við að þiggja almenna félagsþjónustu.
  • Samskipti við miðstöðvar og/eða aðra þá sem koma að málum notenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun
  • Íslenskukunnátta á stigi B1-C1, samkvæmt samevrópska matskvarðanum
  • Gilt ökuleyfi
  • 20 ára aldurstakmark
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Umburðarlyndi og virðing fyrir manneskjunni í hvaða aðstæðum sem er
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Dugnaður og gott verkvit
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymi
  • Reynsla af krefjandi verkefnum í félagslegri heimaþjónustu eða umönnun kostur
  • Reynsla af vinnu með fólki í fíknivanda kostur
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Menningar- og sundkort Reykjavíkur
  • Aðgengi að stuðnings- og ráðgjafateymi
Utworzono ofertę pracy14. October 2025
Termin nadsyłania podań29. October 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.Prawo jazdy
Odpowiada
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe