

Hríseyjarskóli: Umsjónarkennari
Laus er til umsóknar 70-100% staða umsjónarkennara við Hríseyjarskóla. Um er að ræða ótímabundið starf sem ráðið er í frá 1. ágúst 2025.
Ert þú einstaklingurinn sem við leitum að og langar þig til að vinna í litlu samfélagi? Ef svo er þá er hér einstakt tækifæri til að starfa í fámennum skóla þar sem kennt er í fámennum hópum til að mæta hverjum nemanda þar sem hann er staddur námslega.
Hríseyjarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 14 nemendur í 1. – 10. bekk.
Framtíðarsýn skólans er að vera lærdómssamfélag þar sem nemendur, foreldrar og starfsmenn eru virkir þátttakendur og að allir sem komi skólanum á einn eða annan hátt, átti sig á þeim forréttindum sem smæð samfélagsins er og nálægðin við náttúruna býður uppá.
Skólinn er grænfána- og heilsueflandi skóli og er að innleiða uppbyggingarstefnuna.
Einkunnarorð skólans eru Hríseyjarskóli – skapandi samfélag
Við leitum að metnaðarfullum kennara sem er tilbúinn að starfa með okkur.
Við aðstoðum við að finna húsnæði.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.hriseyjarskoli.is
- Kennari sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
- Reynsla af kennslu í grunnskóla er kostur
- Reynsla og áhugi á teymiskennslu
- Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræðum
- Hefur á valdi sínu og er tilbúinn að beita fjölbreyttum kennsluaðferðum sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og hæfileikum nemenda
- Frumkvæði og góðir skipulagshæfileikar
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og hæfni í samskiptum
- Reglusemi og samviskusemi
- Stundvísi
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Æskilegt er að viðkomandi hafi góða tölvu- og tæknikunnáttu
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu












