Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á yngsta stigi - Skarðshlíðarskóli

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum deildarstjóra til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni:

  • Annast deildarstjórn á yngsta stigi
  • Hefur yfirumsjón með verkefnum innan kennslustigs
  • Leiða námsmatsvinnu
  • Tekur á hegðunarvanda nemenda á kennslustigi
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótun á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og /eða uppeldis- eða kennslufræði er kostur
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta stigi og kennslureynsla
  • Mjög góð þekking og reynsla af fjölbreyttu námsmati
  • Haldgóð þekking á MENTOR, sérstaklega námsmatshlutanum
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námsaðlögun og samþættingu
  • Þekking og reynsla af SMT er kostur
  • Leiðtoga- og skipulagshæfni
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góða íslenskukunnátta

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti [email protected]

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til og með 10. júlí 2025.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Utworzono ofertę pracy26. June 2025
Termin nadsyłania podań10. July 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia