Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Hjúkrunarfræðingur óskast í heimahjúkrun

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa í 80% - 100% stöðu í heimahjúkrun á Selfossi.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felst í heimahjúkrun á svæðinu

  • Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingnum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi.

  • Starfið er fjölbreytt með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.

  • Starfsleyfi landlæknis.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.

Utworzono ofertę pracy8. September 2025
Termin nadsyłania podań18. September 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe