

Gló stuðningsfélag leitar að matráði í sumarbúðir Reykjadals
Gló stuðningsfélag leitar að ábyrgum, jákvæðum og hugmyndaríkum einstaklingi í sumarstarf sem matráður í Reykjadal í Mosfellsdal. Um er að ræða fjölbreytt starf í skemmtilegu umhverfi.
Starfið felst í yfirumsjón með eldhúsi og matseld fyrir gesti og starfsfólk sumarbúðanna. Matráður ber ábyrgð á skipulagningu matseðla og eldamennsku fyrir allt að 50 manns, ásamt því að leiða starf í eldhúsi með tveimur aðstoðarmönnum.
Um er að ræða tímabundið 100% starf á virkum dögum frá lok maí og út ágúst 2026.
Við leitum að einstaklingi sem:
- er jákvæður og lausnamiðaður
- á auðvelt með samskipti og samstarf
- hefur ánægju af því að vinna með fjölbreyttum hópi fólks
- vill taka þátt í skemmtilegu og gefandi sumarstarfi
- Skipulagning matseðla
- Innkaup og yfirsýn birgða
- Eldamennska fyrir gesti og starfsfólk
- Dagleg umsjón og skipulag eldhúss
- Gæðaeftirlit
- Reynsla af sambærilegu starfi eða menntun á sviði matvælagreina
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af því að elda fyrir stærri hópa er kostur
Gló stuðningsfélag hefur haldið úti starfsemi í Reykjadal í Mosfellsdal frá árinu 1963 og skapað þar vettvang fyrir tómstundir, vináttu og öruggt samfélag fyrir fötluð börn og ungmenni. Starfsemin einkennist af gleði, jákvæðni og ævintýrum, þar sem lögð er áhersla á að ekkert sé ómögulegt og að öll börn og ungmenni fái að láta ljós sitt skína á eigin forsendum. Árlega koma rúmlega 200 gestir á aldrinum 8–18 ára í sumarbúðir Reykjadals í Mosfellsdal.











