

Glerárskóli: starfsfólk með stuðning í skólastarfi
Í Glerárskóla er laus 60% staða starfsfólks með stuðning í skólastarfi. Ráðið verður í störfin frá 14. ágúst 2025 (eða eftir samkomulagi) í eitt ár með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Möguleiki er á starfi í frístund til viðbótar við starfið.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu. Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli.
Glerárskóli er hnetulaus skóli.
Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingum sem eiga auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hafa mikinn metnað, eiga auðvelt með öll samskipti og sem leggja áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
- Að aðstoða og leiðbeininga nemendum í námi og leik
- Að aðstoða einstaklinga með sérþarfir
- Að aðstoða nemendur bæði í kennslustundum og utan þeirra
- Að leggja áherslu á að þroska félagslega hæfni nemenda í námi og starfi
- Að starfa í teymi stuðningsfulltrúa og einnig í teymi með kennurum
- Gæsla inni/úti og ýmis önnur störf sem tengist nemendum
- Aðstoð við einstaka nemendur og/eða hópa
- Stuðningsfulltrúar starfa í samvinnu við aðra starfsmenn skólans, undir stjórn kennara og stjórnenda
- Önnur störf sem kennari og/eða stjórnandi felur viðkomandi
- Áhugi á að starfa með börnum á grunnskólaaldri og leikni í samskiptum við börn
- Æskilegt er að umsækjandi sé með reynslu af störfum með börnum
- Færni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki
- Frumkvæði og ábyrgð
- Samviskusemi og reglusemi
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
- Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni
- Ýmiskonar hæfileikar, menntun og/eða þekking sem getur auðgað skólastarfið
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu


















