

Frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi - Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla
Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla óskar eftir að ráða í störf frístundaleiðbeinenda/ráðgjafa í 20-50% starfshlutföll eftir hádegið, frá kl. 13:15.
Dalskóli er samrekinn grunnskóli og frístundaheimili. Í Úlfabyggð er boðið upp á fjölbreytt frístundastarf fyrir börn í 1.-4. bekk að skóladegi loknum. Þar starfa frístundaleiðbeinendur og frístundaráðgjafar sem eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaður endurspegli það margbreytilega.
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Hlutastörf 20-50% frá kl. 13:15 á daginn.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Tímabundin ráðning til og með 9. júní 2026.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Erna Kjartansdóttir
Netfang: [email protected]
Sími: 6648376
Heilsustyrkur
Menningarkort Reykjavíkurborgar
Sundkort í sundlaugar Reykjavíkurborgar












