Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Flokkstjóri í Þjónustumiðstöð

Þjónustumiðstöð Kópavogs hefur umsjón með flestum verkefnum sem tengd eru framkvæmdum á bæjarlandi. Innan þjónustumiðstöðvar eru verkefni sem tengjast snjómokstri, garðyrkju, gatnaviðhaldi, vatns- og fráveitu, sorphirðumálum og önnur þjónusta við íbúa, fyrirtæki og stofnanir.

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar nú að flokkstjórum í eftirfarandi stöður í sumar:

Flokkstjóri við almenna þjónustu
Flokkstjóri stýrir vinnuhópi í almennri þjónustu. Helstu verkefni vinnuhópanna eru viðhald og umhirða gatna og stíga, hreinsun og fegrun bæjarins, hreinsun niðurfalla, ýmis málningarvinna og þökulagnir. Auk þeirra er ýmis þjónusta við bæjarstofnanir.

Flokkstjóri við garðyrkju
Flokkstjóri stýrir vinnuhópi í garðyrkju. Helstu verkefni vinnuhópanna eru umhirða gróðurs, beðahreinsun ásamt hreinsun og umhirðu stofnanalóða. Auk þeirra er ýmis þjónusta við bæjarstofnanir.

Um er að ræða 100% starf á tímabilinu 18. maí - 14. ágúst 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sérstaklega skal þess gætt að öryggisatriði séu ávallt í lagi, bæði hvað varðar tækjabúnað og útbúnað vinnuflokksins (persónuhlífar, endurskinsfatnað og fleira).
  • Umsjón með viðhaldi verkfæra og að þau séu í lagi.
  • Umsjón með vinnu og ásamt því að vinna með vinnuhóp.
  • Flokkstjóri skilar vikulega vinnuskýrslum með verk- og starfsmannanúmerum fyrir sig og vinnuflokkinn sem undir hann heyrir.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri og er starfið ætlað námsfólki.
  • Reynsla af stjórnun eða sambærilegum störfum æskileg.
  • Ökuréttindi á beinskiptar bifreiðar skilyrði.
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Utworzono ofertę pracy15. April 2026
Termin nadsyłania podań30. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Askalind 5, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Podstawowe kategorie prawa jazdyPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Punktualność
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe