
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Sumarstörf í garðyrkjudeild Ungmenni fædd 2010 og eldri
Garðyrkjudeild Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf fyrir ungmenni fætt 2010 og eldri laus til umsóknar. Í störfunum felst almenn garðyrkjustörf og vinna við fegrun bæjarfélagsins t.d sláttur og umhirða grænna svæða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn garðyrkjustörf
- Fegrun bæjarlandsins
- Sláttur
- Umhirða grænna svæða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Störfin eru ætluð ungu fóplki fæddu 2010 og eldri
- Stundvísi
- Samviskusemi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
Utworzono ofertę pracy28. April 2026
Termin nadsyłania podań22. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
Rodzaj pracy
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (1)
Podobne oferty pracy (12)

Umsjónarmaður fasteigna og viðhalds
Heimaleiga

Bílaviðgerðir.
Bílatorgið

Nesbú leitar að öflugum starfsmönnum í þrifateymi - Sumarstarf
Nesbú

Starfsmaður í skiltagerð
Merking ehf

Hreinsun og þjónusta loftræsikerfa / Cleaning and servicing HVAC
Lofstokkaþjónustan

Verkamaður - flokkun og vinnsla
Terra hf.

Starfsmaður í verksmiðju TDK Foil Iceland ehf á Akureyri.
TDK Foil Iceland ehf

Verkamaður & Vélamaður
Fagurverk

Starfsmaður í framleiðslustöð
Malbikstöðin

Hlauparar - Terra Akureyri - sumarvinna
Terra hf.

Hlaupari - Vestmannaeyjar
Terra hf.

Starfsfólk í Straumsvík
HRT þjónusta ehf.