atNorth
atNorth
atNorth

Fjölhæfur og úrræðagóður iðnaðarmaður

Fjölhæfur og úrræðagóður iðnaðarmaður (smiður/rafvirki/pípari)

atNorth stækkar á Akureyri og óskar eftir að ráða hæfileikaríkan og verklega sinnaðan iðnaðarmann til liðs við ört stækkandi rekstrarteymi sitt á Akureyri.

Um er að ræða framtíðarstarf í fullu starfi sem hentar öllum kynjum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ertu verklega þenkjandi einstaklingur sem hefur gaman af því að leysa vandamál, bæta aðstöðu og viðhalda tæknilegum kerfum?

Þetta starf hentar þeim sem hafa reynslu úr smíðum, rafvirkjun eða almennu viðhaldi og hafa ánægju af því að tryggja að hlutir virki vel. 

Þú munt sinna fjölbreyttum viðhaldsverkefnum í tæknilegu, hreinu og öryggisþenkjandi vinnuumhverfi.

  • Almennt viðhald, viðgerðir og umhirða á aðstöðu gagnaversins
  • Minni háttar rafmagns-, smíða- og pípulagnavinna (innan heimilda)
  • Koma auga á og leysa vandamál áður en þau stækka
  • Samskipti og samvinna við verktaka vegna sérhæfðra viðgerða
  • Viðhald á lýsingu, innréttingum og minni uppsetningarverkefni
  • Sjá um að verkfæri, efni og birgðir séu í lagi og rétt geymd
  • Aðstoð við tæknilegar uppsetningar eða aðstöðutengd verkefni í tengslum við uppsetningu viðskiptavina
  • Halda vinnusvæði hreinu, öruggu og í hæsta gæðaflokki
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð verkleg færni og tæknileg innsýn
  • Reynsla úr smíðum, rafvirkjun eða almennri viðhaldsvinnu bygginga og aðstöðu
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og viðbragðsflýtir 
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, skiplagshæfni og geta til að forgangsraða verkefnum
  • Góð færni í samskiptum og samstarfi með samstarfsfólki og verktökum
  • Áhugi og geta til að vinna í skipulögðu og hátæknilegu umhverfi þar sem gæði skipta máli
Fríðindi í starfi
  • Við tryggjum að þú fáir þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera til að geta sinnt starfinu
  • Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
  • Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
  • Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Utworzono ofertę pracy2. July 2025
Termin nadsyłania podań13. July 2025
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hlíðarvellir 1
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.KreatywnośćPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.InnowacyjnośćPathCreated with Sketch.HydraulikaPathCreated with Sketch.ElektrykaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.BudownictwoPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Skrupulatność
Zawody
Oznaczenia