Samgöngustofa
Samgöngustofa

Deildarstjóri siglingadeildar

Samgöngustofa leitar að öflugum stjórnanda í starf deildarstjóra siglingadeildar. Helstu verkefni deildarinnar eru áhafnamál, útgáfa skírteina og vottorða, siglingavernd, hafnríkiseftirlit og öryggi í höfnum.

Deildarstjóri siglingadeildar ber ábyrgð á daglegum rekstri, starfrænni vegferð, faglegri þróun og árangri deildarinnar og tryggir að starfsemin fylgi lögum, reglum og verklagsreglum Samgöngustofu. Hann starfar innan ramma stefnu og leiðbeininga framkvæmdastjóra siglingasviðs og leggur sitt af mörkum til að viðhalda ábyrgum rekstri með skilvirkni, hagkvæmni og samfélagslegum sjónarmiðum að leiðarljósi.

Við leitum að áhugasömum einstaklingi um málefni sviðsins, sem hefur brennandi áhuga á stjórnun og forystu, leggur áherslu á samvinnu og vill byggja upp öfluga liðsheild og eftirsóttan vinnustað. Starfshlutfall er 100%.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur, sem og farsæl reynsla af árangursríkri stjórnun og skilvirkri framkvæmd verkefna.
  • Farsæl reynsla af því að leiða og þróa starfsemi, þar á meðal uppbyggingu liðsheildar og markvisst umbótastarf.
  • Haldgóð reynsla eða þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu.
  • Þekking á innlendu og alþjóðlegu regluverki siglinga kostur.
  • Þekking á gæðastjórnunarkerfum.
  • Góðir samskiptahæfileikar ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
  • Góð tölvukunnátta; þekking á stafrænum lausnum og starfrænni þróun er kostur.
Utworzono ofertę pracy25. November 2026
Termin nadsyłania podań7. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe