

Deildarstjóri á gæslusviði
Securitas leitar að reyndum og árangursdrifnum leiðtoga í starf deildarstjóra farandgæslu og verðmætaflutninga. Viðkomandi leiðir kraftmikinn hóp sem starfar í fjölbreyttu og spennandi umhverfi að því að tryggja framúrskarandi öryggisþjónustu til einstaklinga og fyrirtækja.
Starfssvið
Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegri stýringu og rekstri deildarinnar, leiðir stefnumótun og áætlanagerð, heldur utan um samskipti við viðskiptavini, innleiðir verkefni og styður við teymi sérfræðinga ásamt því að stuðla að framþróun í rekstri. Deildarstjóri leiðir hópinn með það að leiðarljósi að skapa jákvæða og öfluga liðsheild sem vinnur að sameiginlegum markmiðum Securitas. Viðkomandi er þátttakandi í stjórnendateymi Securitas og kemur að stefnumótun og framfaraverkefnum gæslusviðs.
Þekking og reynsla
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Haldbær reynsla af stjórnun ásamt reynslu af stýringu og utanumhaldi stórra verkefna
- Þekking og reynsla af rekstri og áætlanagerð
- Leiðtogahæfileikar og hæfni til að fá fólk með sér í lið
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Markmiða- og lausnamiðuð hugsun
- Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
Vinnustaðurinn Securitas
Hjá Securitas starfar fjölbreyttur og öflugur hópur starfsfólks sem telur um 500 manns víðs vegar um landið. Okkar markmið er að stuðla að öruggara umhverfi með því að veita faglega ráðgjöf, framúrskarandi þjónustu og lausnir með hátæknibúnaði sem hentar viðskiptavinum hverju sinni. Hjá okkur hefur starfsfólk tækifæri til starfsþróunar og er Securitas fyrsta öryggisfyrirtækið á Íslandi til að taka upp raunfærnimat öryggisvarða. Einnig höfum við fengið viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í vinnustaðanámi frá Nemastofu atvinnulífsins. Bæði verðlaunin undirstrika okkar faglegu vegferð í fræðslu og þjálfun. Starfsfólk okkar vinnur saman sem ein heild og lögð er áhersla á virðingu í samskiptum meðfram gildum okkar.
Umsóknafrestur er til og með 6.desember nk. Nánari upplýsingar veitir Baldur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri gæslusviðs í síma 580-7000.
Hreint sakavottorð er skilyrði, unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast og farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
islandzki
Angielski

