Akureyri
Akureyri
Akureyri

Deildarstjóri í Leikskólann Lundarsel-Pálmholt

Leikskólinn Lundarsel-Pálmholt á Akureyri óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundna stöðu. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf í janúar 2027 en byrjunardagur getur verið eftir samkomulagi.

Lundarsel-Pálmholt er sjö deilda leikskóli á tveimur starfsstöðvum, Lundarsel við Hlíðarlund og Pálmholt neðra við Þingvallarstræti. Aldur barna er frá 12 mánaða til sex ára.

Auglýst er eftir deildarstjóra á deild með elstu börnunum í Lundarseli.

Í Lundarseli-Pálmholti leggjum við áherslu á lærdómsríkt umhverfi sem hvetur til sköpunar, umræðna og rannsókna. Við vinnum út frá áhuga barnanna og undrun þeirra á tilverunni. Við lítum á leikinn sem hornstein leikskólastarfsins og leggjum því mikla áherslu á að leikgleði barnanna fái notið sín í daglegu lífi leikskólans. Til að skapa gott andrúmsloft, tryggja öryggi og velferð allra í leikskólanum er unnið með SMT skólafærni.

Einkunnaorð skólans eru: Glaðir spekingar sem leika og læra saman.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://lundarsel.karellen.is/

Deildarstjóri er stjórnandi á sinni deild og hluti af tíu manna stjórnendateymi leikskólans.

Vilt þú vera með okkur í liði og leggja þitt af mörkum?

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun, skipulagning og fagleg ábyrgð á starfi deildarinnar.
  • Dagleg verkstjórn og upplýsingamiðlun.
  • Forysta og samstarf innan starfsmannahópsins.
  • Skipulag og stjórnun deildarfunda.
  • Ábyrgð á að unnið sé samkvæmt skólanámskrá og starfsáætlun.
  • Samstarf og samskipti við foreldra.
  • Þátttaka í stjórnendateymi, þróunarstarfi og mati á starfi leikskólans.
  • Að tryggja að þörfum hvers barns sé mætt.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í leikskólakennarafræðum eða önnur háskólamenntun (B.Ed., BS, BA) sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi í leikskóla.
  • Jákvæðni, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleiki.
  • Góð samskiptafærni, frumkvæði og hæfni til að vinna í teymi.
  • Góð íslenskufærni í ræðu og riti.
  • Góð tölvufærni.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Utworzono ofertę pracy1. October 2026
Termin nadsyłania podań18. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hlíðarlundur 4, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Ogólne umiejętności obsługi komputeraPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.UczeniePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Elastyczność
Zawody
Tagi zawodowe