Akureyri
Akureyri
Akureyri

Mannauðsdeild Akureyrarbæjar: Mannauðsráðgjafi

Hefur þú þekkingu og reynslu til að takast á við fjölbreytt verkefni á sviði mannauðsmála ? Hefur þú áhuga á að starfa í líflegu starfsumhverfi og í samstarfi við öfluga stjórnendur og starfsfólk á vinnustöðum Akureyrarbæjar ?

Við gætum verið að leita að þér.

Laus er til umsóknar 100% staða mannauðsráðgjafa hjá mannauðsdeild Akureyrarbæjar. Um er að ræða ótímabundið starf með sveigjanlegan dagvinnutíma og 36 klukkustunda vinnuviku.

Mannauðsdeild er ein tveggja deilda mannauðssviðs ásamt launadeild. Mannauðsráðgjafi er starfsmaður Akureyrarbæjar og starfar í teymi mannauðsdeildar.

Innan deildarinnar er veitt ráðgjöf og stuðningur í mannauðsmálum, höfð er umsjón með miðlægri fræðslu til stjórnenda, miðlægri nýliðafræðslu starfsmanna, stöðu forvarna- og öryggismála, vinnuslysaskráningum, auglýsingu starfa, umsóknarvef og fræðslugátt, veitt aðstoð og ráðgjöf við ráðningar, annast framkvæmd vinnustaðagreininga ásamt öðrum þeim verkefnum sem tengjast starfsmannaferli sem og þróunarvinnu í mannauðsmálum sem miðar að því að auka árangur með góðum stjórnunarháttum.

Verkefni og ábyrgð:

  • Hefur aðkomu að og sinnir fjölbreyttum verkefnum á starfssviði deildarinnar.
  • Vinnur að úrlausn og eftirfylgni með verkefnum.
  • Veitir stuðning við stjórnendur og starfsfólk í mannauðsmálum.
  • Vinnur við ýmsar úttektir og greiningar í tengslum við mannauðsmál.
  • Tekur þátt í gerð, endurskoðun og uppfærslu verkferla í mannauðsmálum.
  • Ýmis þróunarvinna í mannauðsmálum sem miðar að því að efla góð vinnubrögð, auka árangur og ýta undir vellíðan.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (BA/BS).
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði mannauðsstjórnunar, vinnusálfræði, opinberrar stjórnsýslu eða kynjafræði, er kostur.
  • Starfsreynsla á sviði mannauðsmála er æskileg.
  • Starfsreynsla af ráðgjöf sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Þekking og starfsreynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.
  • Mjög góð íslenskukunnátta og færni í að setja mál sitt fram á skýran hátt bæði í ræðu og riti.
  • Góð alhliða tölvukunnátta og burðir til að tileinka sér nýjungar á því sviði.
  • Greiningarhæfni.
  • Færni í framkvæmd og úrvinnslu úttekta/greininga.
  • Færni í miðlun upplýsinga.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í verkefnum.
  • Jákvætt viðhorf, samstarfsvilji og samskiptafærni.
  • Vilji til þekkingarleitar, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá um starfsreynslu umsækjanda og menntun ásamt greinargóðum upplýsingum um þau verkefni sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni til að sinna starfi mannauðsráðgjafa.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Visku.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar í netfanginu [email protected]

Nánari upplýsingar um starfið veitir Birna Eyjólfsdóttir forstöðumaður mannauðsmála, netfang [email protected]

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is

Umsóknarfrestur er til og með 13. október 2026

Utworzono ofertę pracy1. October 2026
Termin nadsyłania podań13. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Geislagata 9, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe