Íslandshótel
Íslandshótel
Íslandshótel

Bókunarfulltrúi - Sölu & Markaðssvið

    Ert þú þjónustulundaður, skipulagður og hefur gaman af samskiptum við fólk? Íslandshótel leita að öflugum bókunarfulltrúa til starfa í bókunardeild fyrirtækisins.

    Bókunarfulltrúi sinnir fjölbreyttum verkefnum tengdum bókunum og samskiptum við viðskiptavini, ferðaheildsala og starfsfólk innan hótelkeðjunnar. Starfið krefst góðrar yfirsýnar, nákvæmni og hæfni í samskiptum.

    Helstu verkefni

    • Móttaka og úrvinnsla bókana
    • Umsjón með einstaklings- og hópabókunum
    • Eftirfylgni bókana og samskipti við viðskiptavini
    • Samskipti við ferðaheildsala og hótel innan keðjunnar
    • Miðlun upplýsinga til stjórnenda og annarra deilda
    • Móttaka og úrlausn kvartana og að koma þeim í rétt ferli
    • Leiðsögn og þjónusta við stjórnendur og starfsfólk
    • Afleysingar innan deildar eftir þörfum
    • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann

    Hæfniskröfur

    • Menntun á framhaldsskólastigi, fagmenntun eða viðbótarnám kostur
    • Reynsla af sambærilegu starfi
    • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
    • Frumkvæði, nákvæmni og góð skipulagshæfni
    • Gott vald á íslensku og ensku, önnur tungumál kostur
    • Almenn tölvukunnátta og talnagleggni
    • Þekking á Opera er kostur

    Gildin okkar eru:

    Samvinna - Fagmennska - Hugrekki - Umhyggja

    Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

    Í gegnum tvö öflug vörumerki, bjóða Íslandshótel gæða hótel hringinn í kringum landið í nálægð við stórbrotið landslag og einstakar náttúruperlur. Innan Fosshótel og Hótel Reykjavík vörumerkja eru 17 hótel með rétt tæplega 2.000 herbergi. Fosshótel eru staðsett hringinn í kringum landið og Hótel Reykjavík með 4 stjörnu hótel í Reykjavík fyrir ferðamenn og ráðstefnugesti sem vilja njóta glæsilegar aðstöðu og framúrskarandi þjónustu.

    Lærðu meira um Íslandshótel

    Utworzono ofertę pracy18. May 2026
    Termin nadsyłania podań1. June 2026
    Znajomość języków
    islandzkiislandzki
    Wymagane
    Ojczysty
    AngielskiAngielski
    Wymagane
    Doskonale
    Lokalizacja
    Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
    Rodzaj pracy
    Kompetencje
    PathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
    Zawody
    Tagi zawodowe