

Birgðastjóri
Coca-Cola á Íslandi leitar að birgðastjóra á vörustjórnunasvið CCEP.
Við leitum að skipulögðum og ábyrgðarfullum einstaklingi í starf birgðastjóra á lager. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf með ábyrgð á birgðahaldi og þátttöku í daglegum rekstri vöruhúss. Birgðastjóri heyrir undir forstöðumann vöruhúss og dreifingu. Starfið myndi henta vel einstaklingi sem hefur nýlega lokið við háskólanám.
-
Umsjón með birgðum og lagerstöðu
-
Eftirlit með helstu mælikvörðum og umbætur tengdar þeim
-
Samskipti við áætlunarteymi og framleiðslu
-
Heimköllun á gámum með innfluttum vörum og hráefnum
-
Talningar og birgðaleiðréttingar
-
Þátttaka í umbótaverkefnum þvert á vörustjórnunarsvið
-
Háskólamenntun í viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegu námi er kostur
-
Góð tölvukunnátta, reynsla af birgðakerfum er mikill kostur
-
Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Góð samskiptahæfni og þjónustulund
-
Reynsla af starfi á lager er kostur
-
Leiðtogahæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði eru nauðsynleg
-
Enskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg
-
Framúrskarandi hæfni í samskiptum

