Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Sérfræðingur í hagdeild

Coca-Cola á Íslandi leitar að sérfræðingi í tímabundið starf í hagdeild vegna fæðingarorlofs.

Starfið felur í sér greiningar, eftirlit með kostnaðarverði vara, uppbygging lykilmælikvarða og áætlanagerð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Eftirlit með mælikvörðum, mælaborðum og frávikagreining á kostnaðarverði seldra vara 

  • Gagnaöflun og greiningar fyrir stjórnendur 

  • Stuðningur við vörustjórnunarsvið, viðhalda lykilmælikvörðum, eftirlit með kostnaðarverði vara, viðhalda mælaborðum, kostnaðareftirliti og greining á arðsemi fjárfestinga. 

  • Þátttaka í fjárhagsáætlunargerð og rekstrarspám. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í viðskiptum, fjármálum, verkfræði eða sambærilegt eða a.m.k. 3 ára reynsla í sambærilegu starfi 

  • Haldbær reynsla af greiningarvinnu og skýrslugerð. 

  • Mjög góð þekking og reynsla af notkun á Excel og Power BI 

  • Þekking og reynsla af viðskiptagreind 

  • Góður skilningur á rekstri fyrirtækja – reynsla frá framleiðslufyrirtæki kostur 

  • Reynsla úr alþjóðlegu umhverfi er kostur 

  • Góð hæfni til að tileinka sér nýja tækni og miðla áfram til annarra 

  • Enskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg 

  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum 

  • Leiðtogahæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði eru nauðsynleg 

Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. 
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks. 

Umsóknarfrestur 17.júní 2025 
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sandra Margrét Sigurjónsdóttir [email protected] en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef. 

Utworzono ofertę pracy7. June 2025
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Stuðlaháls 1, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia