Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Akademísk staða við félagsvísindadeild

Háskólinn á Bifröst leitar að akademískum starfsmönnum innan félagsvísindadeildar. Um er að ræða 1-2 stöður og til greina kemur að ráða í hlutastöðu sem og fulla stöðu. Við leitum að einstaklingi með metnað og áhuga á að taka virkan þátt í þróun kennslu og rannsókna við deildina.

Stöðurnar sem um er að ræða eru á sviði öryggisfræða, almannavarna og áfallastjórnunar, og einnig á sviði menningar- og skapandi greina eða almennra félagsvísinda.

Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar í kennslu og er leiðandi í þróun stafræns fjarnáms á háskólastigi hér á landi. Háskólinn á Bifröst er með starfsstöðvar í Reykjavík og á Hvanneyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla á sviðum öryggisfræða, almannavarna og áfallastjórnunar, og einnig á sviði menningar- og skapandi greina eða almennra félagsvísinda.
  • Rannsóknir og fræðastörf 
  • Mótun og þátttaka í rannsóknarverkefnum og umsóknir í rannsóknarsjóði, jafnt innlenda sem erlenda 
  • Þátttaka í samfélagslegri umræðu á fræðasviðinu 
  • Þátttaka í stefnumótun og stjórnun 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðeigandi framhaldsmenntun á háskólastigi, doktorspróf er æskilegt 
  • Reynsla af fjarkennslu á háskólastigi er kostur
  • Reynsla af rannsóknum 
  • Reynsla af uppbyggingu og mótun námskeiða er kostur
  • Reynsla af stjórnun á háskólastigi er kostur
  • Tengsl við eða reynsla af atvinnulífi og hinu opinbera er kostur 
  • Skipulagsfærni, þjónustulund og faglegur metnaður 
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti 
Utworzono ofertę pracy30. April 2026
Termin nadsyłania podań25. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe