Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Deildarforseti sálfræðideildar Háskólans í Reykjavík

Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum, akademískum leiðtoga í starf deildarforseta sálfræðideildar háskólans. Deildarforseti fer með daglega stjórn deildarinnar og stýrir stefnumótun hennar. Deildarforseti heyrir undir rektor og sviðsforseta samfélagssviðs og situr jafnframt í framkvæmdaráði Háskólans í Reykjavík.

Helstu verkefni

  • Mótun framtíðarsýnar og stefnu deildar, í samræmi við stefnu háskólans og annarra deilda
  • Stjórnun deildarinnar og upplýsingagjöf til starfsfólks og nemenda
  • Ábyrgð á stjórnskipulagi deildarinnar samkvæmt stefnu háskólans og að tryggja þátttöku akademísks starfsfólks og nemenda í stjórnun hennar
  • Eftirfylgni með skipulags- og starfsreglum deildarinnar
  • Gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlunar í samráði við sviðsforseta samfélagssviðs
  • Ráðning fasts starfsfólks og mönnun námskeiða við deildina í samráði við sviðsforseta samfélagssviðs
  • Tryggja að skipulag námsbrauta sé ætíð í samræmi við viðmið um æðri menntun og prófgráður
  • Gerð kennsluskrár deildarinnar og regluleg endurskoðun og uppfærsla námsbrauta með hliðsjón af þörfum íslensks samfélags og atvinnulífs og þróun sambærilegs náms erlendis
  • Ábyrgð á árlegu innra gæðamati deildarinnar ásamt skipulagi og þátttöku deildarinnar í ytra mati í samræmi við viðmið Gæðaráðs háskólanna

Hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi með eftirfarandi hæfni.

  • Reynsla af leiðtogahlutverki í akademísku umhverfi
  • Metnaður til að vinna að stefnumótun og leiða uppbyggingu liðsheildar
  • Yfirgripsmikil reynsla af rannsóknum og kennslu á háskólastigi
  • Reynsla af alþjóðlegum vettvangi og öflugt tengslanet í faginu á alþjóðavísu
  • Doktorspróf á sviði sálfræði eða í sambærilegri grein
  • Góð færni í ensku, bæði í ræðu og riti. Íslenskukunnátta er kostur.
  • Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veita Bryndís Björk Ásgeirsdóttir sviðsforseti samfélagssviðs ([email protected]) eða Ester Gústavsdóttir mannauðsstjóri ([email protected]). Fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Umsóknum skal skilað á á ráðningarvef Háskólans í Reykjavík eigi síðar en 15. maí 2026 ásamt ítarlegri ferilskrá, upplýsingum um ritrýndar birtingar, kynningarbréfi og að minnsta kosti þremur meðmælabréfum. Einnig skal fylgja sýn umsækjenda á þróun sálfræðideildar HR næstu fimm árin.

In English

Utworzono ofertę pracy27. April 2026
Termin nadsyłania podań15. May 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe