

Ábyrgðaraðili verkskipulags
Orka náttúrunnar leitar að öflugum og reynslumiklum sérfræðingi í starf ábyrgðaraðila verkskipulags.
Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki við að tryggja skilvirkt verkflæði, rekstraröryggi og hámarka nýtingu mannafla og fjármuna.
Hlutverkið felur í sér eignarhald á viðhaldsstjórnunarferli ON og viðhaldsstjórnunarkerfi (DMM) ásamt ábyrgð á rekstri kerfisins og þróun þess.
Í hlutverki ábyrgðaraðila verkskipulags færðu umboð og traust til þess að móta ferla og verklag sem tryggja að viðhaldsverkefni, verkbeiðnir og önnur verk séu:
- rétt skilgreind og undirbúin
- rétt forgangsröðuð í samvinnu við eigendur búnaðar og stjórnendur
- tímasett og úthlutuð með markvissum hætti
- faglega afgreidd í markvissri samvinnu þvert á rekstur virkjana
Ef þú býrð yfir leiðtogafærni og ástríðu fyrir skilvirku verkflæði þá hvetjum við þig til þess að sækja um starfið.
- Skipuleggja og samræma viðhaldsverkefni, verkbeiðnir og úthlutun verkefna
- Sjá um rekstur, þróun og daglega notkun DMM-kerfisins, þ.á.m. uppfærslur, stillingar og notendaþjálfun
- Tryggja gæði, áreiðanleika og samræmi gagna í kerfinu
- Fylgjast með framvindu verka, skila stöðuskýrslum, greina frávik og koma með tillögur að úrbótum
- Vinna náið með stjórnendum, verkstæði og ábyrgðaraðilum búnaðar að forgangsröðun og samræmingu verka
- Þróa ferla og vinna markvisst að umbótum til að auka skilvirkni og draga úr kostnaði
- Reynsla af verkskipulagi og viðhaldsstýringu rekstrar- og viðhaldsverkefna í sambærilegu starfsumhverfi
- Marktæk reynsla af notkun viðhaldskerfa og færni í gagna- og ferlavinnu
- Sterk kerfishugsun, yfirsýn og geta til að sameina fólk, gögn og ferla í eina heild
- Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti
- Áreiðanleiki, frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt jafnt sem í samstarfi
- Umbótasinnað viðhorf og lausnamiðuð hugsun
- Árangursdrifni og leiðtogahæfileikar sem smita því hugarfari til samstarfsfólks
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur, s.s. á sviði verkfræði/tækni eða sambærilegu
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.
islandzki










