Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Slagregnsprófun á ísetningu á glugga

Þetta er námskeið fyrir alla sem setja glugga í steinsteypt hús og þétta með þeim.

Markmið með námskeiðinu er að fræða þátttakendur um gluggaþéttingar og kenna þeim einfalda aðferð til að slagregnsprófa þá.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Kröfur um eiginleika glugga í íslenskri byggingarreglugerð og merkingu hugtakanna tveggja þrepa þétting, rakaflæði, rakastreymi o.s.frv.
  • Framleiðslustýringu í glugga- og hurðaverksmiðju, kröfurnar til að mega CE merkja glugga og hurðir og sýnd dæmi um hættumat í framleiðslunni, verkferla, verklýsingar og gæðaeftirlit. 
  • Aðferðafræði við framkvæmd slagregnsprófa á gluggum og hurðum samkvæmt kröfum um CE merkingar og þar með kröfum í byggingarreglugerð.
  • Hvernig hægt er með einföldum hætti að gera sambærilegt slagregnspróf á glugga, endanlega frágengnum í vegg á byggingarstað með svipuðum hætti og þegar þéttleiki glugga er prófaður í tilraunastofu. 

Í lok námskeiðs framkvæma þátttakendur sjálfir próf á þéttleika á gluggaþéttingu.

Rozpoczyna się
24. Sep 2025
Rodzaj
Na miejscu
Czas trwania
1 razy
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie