Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Sketchup alla leið

Í þessari námskeiðaröð er Sketchup tekið alla leið. Byrjað er á grunni í þrívíðri teikningu og svo er kennt að setja upp teikningar og málsetja. Vinnubúðirnar einkennast af grúski, annaðhvort í ögrandi verkefni frá leiðbeinanda eða í eigin verkefnum. Í síðasta hluta námskeiðsins er þrívíddin tekin og glædd lífi. Þátttakendur fá betri innsýn í notkun forritsins, vinna með Layout, setja upp verkteikningar og kynnast Twinmotion og heimi sýndarveruleikans.   

Námskeiðaröðin hentar öllum þeim sem hafa áhuga þrívídd, fallegum teikningum og sýndarveruleika og vilja ná valdi á að nota Sketchup í daglegum störfum sínum. 

Uppbygging námskeiðsins. 

SketchUp Pro: (þrír dagar x 4 klst.) 

Sketchup vinnubúðir: (þrír dagar x 4 klst.) 

SketchUp Pro og Layout - framhald (þrír dagar x 4 klst.) 

Kennari: Björn Jóhansson, BA Hons, Dipl LA, MSc

Rozpoczyna się
15. Oct 2024
Rodzaj
Na miejscu
Czas trwania
9 razy
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie