Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Fjölbreytileiki í íþróttakennslu - endurmenntun

Tveggja daga faglegt námskeið fyrir íþróttakennara í grunnskólum

Staðsetning: Melaskóli, íþróttasalur

Markmið námskeiðsins:

Að endurnýja og stækka verkfærakistu íþróttakennara með nýjum og fjölbreyttum kennsluaðferðum sem hvetja til þátttöku allra nemenda og auka gæði íþróttakennslu.

Á námskeiðinu færðu:

  • Fjölda nýrra leikja og æfinga fyrir aldurshópinn 6-16 ára
  • Fjölbreyttar hugmyndir að eltinga- og skotleikjum
  • Hagnýtar kennsluaðferðir í íþróttagreinum (körfubolta, handbolta, fimleikum)
  • Hugmyndir að fjölbreyttri notkun áhalda (húllahringir, baunapokar, sippubönd o.fl.)
  • Aðferðir til að aðlaga æfingar að ólíku getu- og áhugasviði nemenda
  • Tækifæri til að skiptast á reynslu og hugmyndum við aðra kennara
  • Bækling með öllu efni sem kennt er á námskeiðinu

Fyrir hverja:
Íþróttakennara á grunnskólastigi (1.-10. bekkur)

Lengd:
Námskeiðið er kennt í tvo daga frá 9:00–14:30, samtals 10 klst.

Taktu skrefið, bættu við þig nýjum aðferðum til að auka gleði og árangur nemenda þinna í íþróttum! Skráning og nánari upplýsingar á mimir.is.

Rozpoczyna się
19. Aug 2025
Rodzaj
Na miejscu
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie