Wise lausnir ehf.

Wise lausnir ehf.

Brennum fyrir tækni og árangri viðskiptavina
Wise lausnir ehf.
About the company
Wise er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, ráðgjöf og innleiðingu á breiðu úrvali viðskipta- og rekstrarlausna sem hjálpa fyrirtækjum að skara fram úr, mæta áskorunum og grípa ný tækifæri. Lausnaframboð okkar samanstendur af hýsingar- og rekstrarþjónustu, öryggislausnum og heildstæðum viðskiptalausnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. Hjá Wise starfa tæplega 200 sérfræðingar í Reykjavík, á Akureyri og í Litháen. Við erum fjölbreyttur hópur fólks sem eigum það sameiginlegt að brenna fyrir upplýsingatækni, nýsköpun og árangri viðskiptavina. Wise er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Við leggjum áherslu á hvetjandi starfsumhverfi með markvissri fræðslu og þjálfun, að starfsfólki líði vel í vinnunni og að starfsandi sé eins og best verður á kosið. Jafnframt er boðið upp á samgöngu- og heilsustyrk til starfsmanna. Fyrirtækið býður upp á samkeppnishæf laun og hlaut jafnlaunavottun 2021 og viðurkenningu FKA Jafnvægisvogarinnar 2022.

Jafnlaunavottun

Jafnvægisvog FKA

Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfsþróun og verkefnin
Við bjóðum tækifæri til framþróunar í starfi og endurmenntun. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna í spennandi verkefnum í upplýsingatækni og koma að þróun stafrænna lausna.
Starfsánægja og endurgjöf
Við hlustum á okkar starfsfólk og tökum púlsinn reglulega, t.d. með Moodup. Við bjóðum reglulega endurgjöf og opinská samtöl um frammistöðu.

51-200

employees

Home office

Við bjóðum upp á sveigjanlegan vinnutíma eftir því sem kostur er.

Health / Sport

Við leggjum áherslu á heilsu og vellíðan starfsfólks, m.a. með greiðslu heilsustyrks.

Commute

Við hvetjum starfsfólk til að nota vistvænan, hagkvæman og heilsusamlegan ferðamáta, m.a. með greiðslu samgöngustyrks.

Entertainment

Það skiptir okkur máli að það sé gaman í vinnunni, hjá okkur er öflugt starfsmannafélag sem stendur fyrir skemmtanastarfi.

Housing

Við störfum í opnu vinnurými og bjóðum upp á fyrsta flokks búnað og aðstöðu.

Food / meal at work

Við bjóðum hollan og góðan mat og er vegan kostur alltaf í boði. Hádegismatur er niðurgreiddur.