Vesturbyggð

Vesturbyggð

Vinnustaðurinn
Vesturbyggð
About the company
Vest­ur­byggð er á sunn­an­verðum Vest­fjörðum og saman­stendur af þremur þétt­býlis­kjörnum, Patreks­firði, Tálknafirði og Bíldudal og auk þess sveitir þar í kring. Einstök nátt­úru­fegurð prýðir sunn­an­verða Vest­firði og hér er ótal margt að sjá og upplifa. Í Vesturbyggð er öflugt atvinnulíf, fjölbreytt þjónusta og gott mannlíf. Góð þjónusta er í sveitarfélaginu, öflugt æskulýðsstarf, leikskólar, íþróttasvæði, verslanir, sjúkrahús, verkstæði, vélsmiðjur, trésmíðaverkstæði, bíó, ferðaþjónusta og fl. Náttúrufegurð er mikilfengleg, en m.a. Rauðisandur og Látrabjarg er innan sveitarfélagsins. Möguleikar til útivistar, félagsstarfa, íþrótta og afþreyingar eru fjölmargar. Vesturbyggð tekur vel á móti nýjum íbúum!
Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður