Hornsteinn ehf

Hornsteinn ehf

Vinnustaðurinn
Hornsteinn ehf
About the company
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. á og rekur þrjú dótturfélög, BM Vallá, Sementsverksmiðjuna og Björgun, sem eiga sér rótgróna sögu á Íslandi. Þau byggja starfsemi sína á sterkri gæða- og þjónustuvitund enda mynda þau saman hornstein í íslenskum byggingariðnaði þar sem miklar kröfur eru gerðar til gæða og endingar íslenskra mannvirkja. Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og er markvisst unnið að lausnum sem hafa jákvæðari umhverfisáhrif. Hjá fyrirtækjunum starfar fjölbreyttur og samhentur hópur fólks að því að gera mannvirkjagerð á Íslandi umhverfisvænni.

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2017

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2018

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2019

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2020

Jafnlaunavottun

Aðildarfélag Festu fyrir samfélagsábyrgð

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2021

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2022

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2024

Bíldshöfði 7, 110 Reykjavík
Mannauðsstefna
Mikil áhersla er á faglega vinnu þar sem ferlar, árangur og stöðugar úrbætur eru hafðar að leiðarljósi. Við tilheyrum liðsheild þar sem metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis og við viljum gera starfsfólki okkar kleift að samhæfa vinnu og fjölskylduábyrgð.
Jöfn tækifæri
Með jafnréttisstefnunni okkar tryggjum við að starfsfólk hafi jafna möguleika óháð kyni, þjóðerni, kynþætti, kynhneigð, aldurs og fleiri þátta.

51-200

employees

Mobile phone, notebook...

Við fylgjum heilsu- og öryggisstefnu. Vinnufötum og öryggisbúnaði er úthlutað í samræmi við starf.

Activity

Fastráðið starfsfólk fær styrk til heilsueflingar að eigin vali.

Health / Sport

Við erum í samstarfi við Heilsuvernd sem býður upp á margskonar þjónustu fyrir starfsfólk.

Food / meal at work

Matur í mötuneyti er starfsfólki að kostnaðarlausu, einungis er greiddur hlunnindaskattur.

Entertainment

Starfsmannafélagið heldur úti öflugu skemmtanastarfi með ýmiskonar uppákomum yfir árið.

Fræðsla og starfsþróun
Fyrirtækið vinnur markvisst metnaðarfullt fræðslustarf. Lögð er áhersla á ábyrgð og hvatningu stjórnenda til að viðhalda faglegri þekkingu og efla jafnframt tækifæri starfsmanna með markvissri símenntun.