About the company
GG Verk er 20 ára gamalt byggingafyrirtæki sem setur fólk í fyrsta sæti.
Hlutverk GG Verk er að byggja vönduð mannvirki sem byggð eru innan tilskilins tímaramma - af framúrskarandi fagmennsku og umhyggju fyrir fólki og umhverfi.
Við setjum fólk ávallt í fyrsta sæti og sýnum ábyrgð með því að lágmarka sóun í þágu umhverfisins og viðskiptavina. Við tryggjum áreiðanleika með fyrirhyggju og fyrirbyggjandi lausnum.
GG Verk er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem ríkir góður starfsandi og sterk liðsheild. Hjá okkur starfa um 100 sérfræðingar í mannvirkjagerð, hver á sínu sviði, sem vilja bjóða nýjum snillingum velkomin í okkar öfluga teymi. Við hvetjum því einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um.
GG Verk hlaut ISO 9001:2008 gæðavottun í nóvember 2015 og endurnýjaði svo vottunina og hlaut um leið uppfærslu í ISO 9001:2015 í október 2017. Gæðakerfið er svo tekið út og endurnýjað árlega af ytri vottunaraðilum. GG Verk er jafnframt með jafnlaunavottun síðan 2023.
Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningar og vottanir fyrir að vera Framúrskarandi fyrirtæki frá Credit Info og Fyrirmyndarfyrirtæki frá Viðskiptablaðinu ásamt því að hafa hlotið viðurkenninguna Jafnvægisvogina frá FKA, enda trúum við því að jafnvægi kynja í stjórnun og rekstri fyrirtækja skili bestum árangri.
ISO 9001 - Gæðastjórnunarstaðall
Jafnvægisvog FKA
Jafnlaunavottun
Turnahvarf 4, 203 Kópavogur

100
Starfsmannafjöldi

51-200
employees
2006
year of founding
Health / Sport
Árlegur heilsueflingarstyrkur
Entertainment
Starfsmannafélag fyrir alla sem vilja ásamt ýmsum afsláttar og sérkjörum







