Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið

Yfirmaður mötuneytis

Laust er til umsóknar starf yfirmanns mötuneytis við Háteigsskóla. Um er að ræða 100% starf sem laust er frá 1. ágúst 2026Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur, staðsettur á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar. Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni, félagsfærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu.Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan.Skólinn hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarstofnun síðastliðin þrjú ár í röð í vali á stofnun ársins. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Helga Norberg Sigfúsdóttir í síma 411- 6870 eða í tölvupósti [email protected] eru samkvæmt samningi Sameykis og Reykjavíkurborgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast matseld fyrir nemendur og starfsfólk.
  • Hafa umsjón með gerð matseðla.
  • Annast frágang í eldhúsi.
  • Sjá um samskipti við birgja, innkaup á hráefni, stjórnun og skipulagningu í samvinnu við skólastjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Matreiðslumenntun og reynsla af matreiðslu.
  • Þekking á næringarfræði, fæðuofnæmi og rekstri mötuneyta.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði í starfi, reglusemi og stundvísi.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Góð samskiptahæfni.
Advertisement published9. March 2026
Application deadline23. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Bólstaðarhlíð 47, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teacher
Professions
Job Tags