

Vöruhönnuður
Alfreð leitar að vöruhönnuði til að leiða hönnun á vörum fyrirtækisins, Giggó og Alfreð, liðsauka sem brennur fyrir góðri hönnun og notendaviðmóti, tekur ábyrgð á verkefnum sínum og gerir kröfur til eigin vinnu. Viðkomandi fær mikið frelsi til að móta vörurnar, koma með eigin hugmyndir og nýta sköpunarkraftinn.
Starfið heyrir undir vörustjóra og er unnið í nánu samstarfi við forritara, markaðsteymi og annað starfsfólk fyrirtækisins. Þetta er einstakt tækifæri til að hanna vöru sem er nýjung á markaðnum og vera hluti af alþjóðlegu fyrirtæki í miklum vexti, bæði innanlands og erlendis.
Alfreð er vinnustaður þar sem yfir þrjátíu manns vinna í fjórum löndum, auk þriggja annara landa sem sérleyfishafar starfrækja. Við erum með skrifstofu í Kópavogi og þar líður okkur vel saman auk dótturfélagsins Stokks, í að þróa stafrænar vörur, sem létta fólki lífið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Valdimarsdóttir, vörustjóri Giggó á [email protected].
- Ásýnd (UI) og notendaflæði (UX) á vörum fyrirtækisins; Giggó og Alfreðs
- Byggja upp og viðhalda hönnunarkerfum fyrirtækisins
- Safna endurgjöf og þróa vörurnar áfram svo hún verði einfaldari í notkun og betri
- Framkvæma kannanir, viðtöl, notendaprófanir og gagnagreiningu til að finna hvar notendur lenda í vandræðum og hvað vantar á markaðinn
- Vinna náið með vörustjóra, forriturum og fleirum að því að gera hugmyndir að virkum lausnum
- Nýta ný tól og aðferðir, m.a. gervigreind, til að auka skilvirkni og gæði í þróun
- Tala fyrir góðri notendaupplifun og leggja til úrbætur sem bæta bæði virkni og útlit
- Reynsla af hönnun hugbúnaðar og lausnum sem hafa farið í rekstur
- Reynsla af því að setja upp og viðhalda hönnunarkerfum
- Skilningur á notendahegðun og færni í að greina hana út frá gögnum
- Góð tök á Figma
- Góð tök á UX/UI, samkennd með notendum og þekking á evrópskum aðgengisstöðlum
- Skýr samskipti, góð færni í samstarfi og hæfni til að útskýra hönnunarákvarðanir fyrir stjórnendum
English
