Ferðaþjónusta bænda hf.
Ferðaþjónusta bænda hf.
Ferðaþjónusta bænda hf.

Vöruþróun og framleiðsla ferða á utanlandssviði

Bændaferðir, utanlandssvið Ferðaþjónustu bænda hf. leitar að öflugum og reynslumiklum einstaklingi í 100% starf á skrifstofu okkar í Síðumúla. Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af ferðaþjónustu og framleiðslu ferða, er skipulagður og nákvæmur og hefur brennandi áhuga á að taka virkan þátt í þróun nýrra ferða og ferðavara. Við leitum því að fjölhæfum einstaklingi sem vill taka þátt í þessari vegferð með okkur. Starfið snýr bæði að daglegri bakvinnslu og utanumhaldi ferða sem þegar eru í sölu og að þróun nýrra ferða og ferðavara til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í þróun nýrra ferða og ferðavara.
  • Vinna við uppsetningu og framleiðslu ferða, frá hugmynd að tilbúinni vöru.
  • Samskipti og eftirfylgni við erlenda samstarfsaðila og þjónustuaðila.
  • Gerð og uppfærsla vinnuskjala og annarra gagna fyrir ferðir.
  • Söfnun og miðlun upplýsinga um dagskrá, þjónustu, hótel, samgöngur og aðra þætti ferða.
  • Eftirfylgni með ferðum fyrir brottför og tryggja að upplýsingar og gögn séu rétt og fullnægjandi.
  • Vinna með bókunar-, sölu- og upplýsingakerfi fyrirtækisins.
  • Þátttaka í innleiðingu nýrra kerfa og þróun vinnuferla.
  • Náið samstarf við sölu-, þjónustu- og framleiðsluteymið.
  • Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast rekstri ferða og þróun ferðaframboðs.
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem
•    hefur reynslu af ferðaþjónustu og helst af framleiðslu eða skipulagningu ferða
•    hefur gott auga fyrir smáatriðum og leggur metnað í nákvæm og vönduð vinnubrögð
•    er skipulagður og á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni samtímis
•    hefur frumkvæði og áhuga á að þróa nýjar hugmyndir og koma þeim í framkvæmd
•    er lausnamiðaður og sveigjanlegur og á auðvelt með að bregðast við breytingum
•    getur unnið sjálfstætt en nýtur þess jafnframt að vinna náið með öðrum
•    er óhræddur við tækni og hefur áhuga á að tileinka sér ný kerfi og vinnubrögð
•    hefur góða tölvukunnáttu og er öruggur notandi Microsoft Office, sérstaklega Word og Excel
•    hefur mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
•    hefur brennandi áhuga á ferðalögum, áfangastöðum og þróun nýrra ferðavara

Reynsla af bókunarkerfum eða öðrum kerfum í ferðaþjónustu, gerð ferðagagna og samskiptum við erlenda þjónustuaðila, er mikill kostur.

Advertisement published23. September 2026
Application deadline7. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Síðumúli 2, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.AmadeusPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.InnovativePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.Flexibility
Professions
Job Tags