Tindasel - The Farm
Tindasel - The Farm
Tindasel - The Farm

Leiðsögumaður fyrir buggy-ferðir og afþreyingu á Tindaseli

Tindasel leitar að öflugum og þjónustulunduðum leiðsögumanni til að sjá um buggy-ferðir og aðra afþreyingu fyrir hótelgesti okkar eftir þörfum.

Um er að ræða hlutastarf eða verktakavinnu þar sem leiðsögumaður er kallaður til þegar ferðir eru bókaðar. Starfið hentar því vel samhliða öðru starfi eða námi.

Reynsla af buggy-bílum, fjórhjólum eða sambærilegri afþreyingu er mikill kostur. Skyndihjálparþekking og viðeigandi réttindi eru einnig kostur.

Fyrirkomulag

  • Ekki er um fast starfshlutfall að ræða
  • Vinna fer fram þegar ferðir eru bókaðar
  • Ferðir taka að jafnaði um 2–2,5 klukkustundir, auk undirbúnings og frágangs
  • Leiðsögumaður fær upplýsingar um bókaðar ferðir með fyrirvara
  • Greiðslur og annað fyrirkomulag eru samkvæmt samkomulagi
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að undirbúa og leiða buggy-ferðir frá Tindaseli
  • Að taka vel á móti gestum og kynna ferðina, búnaðinn og öryggisreglur
  • Að tryggja öryggi og góða upplifun þátttakenda
  • Að leiðsegja gestum um svæðið, þar sem meðal annars er ekið yfir ár.
  • Að ganga frá buggy-bílum og öryggisbúnaði eftir ferðir
  • Að sjá eftir þörfum um aðra afþreyingu fyrir hótelgesti
  • Að eiga gott samstarf við gestgjafa og stjórnendur Tindasels
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Er jákvæður, ábyrgur og með ríka þjónustulund
  • Hefur reynslu af leiðsögn, ferðaþjónustu eða útivist
  • Er öruggur í samskiptum og á auðvelt með að leiða hópa
  • Talar góða ensku; íslenska og önnur tungumál eru kostur
  • Hefur gild ökuréttindi
  • Er sveigjanlegur og getur tekið að sér ferðir eftir bókunum
  • Getur unnið á virkum dögum og um helgar eftir þörfum
  • Setur öryggi, fagmennsku og upplifun gestanna ávallt í fyrsta sæti
Advertisement published14. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Tindasel Lodge
Type of work
Professions
Job Tags