
Heimilistæki / Tölvulistinn
Heimilistæki og Tölvulistinn eru keðja heimilistækja- og tölvuverslana sem reknar eru í sameiningu á landsbyggðinni.
Verslanir Heimilistækja og Tölvulistans á landsbyggðinni eru á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjanesbæ.
Verslanirnar eru hluti af Heimilistækja fjölskyldunni sem á og rekur fjölbreyttar verslanir um land allt. Verslanir samstæðunnar eru Heimilistæki, Tölvulistinn, Rafland, Byggt og búið, Kúnígúnd og Iittala búðin en auk þess rekur fyrirtækið Raftækjalagerinn og verkstæði. Hjá samstæðunni starfa tæplega 200 starfsmenn í fjölbreyttum störfum þar sem lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda.

Vörustjóri á innkaupasvið
Við leitum að öflugum, jákvæðum og þjónustudrifnum vörustjóra á innkaupasvið fyrirtækisins.
Starfið felur í sér ábyrgð á skilgreindum vöruflokkum og vörumerkjum, umsjón með innkaupum og birgðum auk samskipta við birgja. Leitað er að einstaklingi sem hefur góða yfirsýn, nýtur þess að vinna með tölur og greiningar og vill taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón og eftirlit með skilgreindum vöruflokkum.
- Umsjón með innkaupum og samskipti við birgja.
- Umsjón og eftirlit með birgðastöðu.
- Skýrslu- og upplýsingagjöf.
- Greiningarvinna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af vörustýringu og innkaupum æskileg.
- Hæfni í samskiptum og samningagerð.
- Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi.
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni og gott viðmót.
- Góð almenn tölvukunnátta, þ.m.t. á Excel og Navision Business Central er kostur.
- Mjög góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti.
Advertisement published5. October 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
Stock managementMicrosoft Dynamics 365 Business CentralBrand management
Work environment
Professions
Job Tags

