Innnes ehf.
Innnes ehf.
Innnes ehf.

Vörumerkjastjóri í drykkjarvörum

Innnes ehf ein stærsta matvöru- og drykkjarheildsala landsins leitar að öflugum og reynslumiklum vörumerkjastjóra til að ganga til liðs við kraftmikið markaðsteymi félagsins.

Vegna aukinna umsvifa Innnes leitar að öflugum og reynslumiklum vörumerkjastjóra til að ganga til liðs við kraftmikið teymi okkar í heildsölu með mat- og drykkjarvörur. Viðkomandi mun bera ábyrgð á áfengum og óáfengum drykkjarvörumerkjum frá alþjóðlegum birgjum og leiða markaðsstarf tengt þeim vörum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Byggja upp og viðhalda tengslum við erlenda birgja.
  • Vinna að markaðssetningu og kynningum í samstarfi við birgja og söluteymi.
  • Ábyrgð á markaðs- og söluáætlunum, innleiðingu markaðsherferða og eftirfylgni þeirra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem sem nýtist í starfi, t.d. markaðsfræði eða framreiðsla/vínþjónn.
  • Reynsla af vörumerkjastjórnun, helst innan drykkjarvörugeirans.
  • Reynsla af samskiptum við erlenda birgja.
  • Mikil færni í skipulagi, samvinnu og frumkvæði í starfi.
  • Sterk hæfni í samskiptum og miðlun upplýsinga.
  • Góð tölvukunnátta, reynsla af Excel og Power Point.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi

Við bjóðum

  • Fjölbreytt starf í öflugu fyrirtæki með sterk vörumerki.
  • Samstarf við leiðandi birgja og þekkta framleiðendur á alþjóðavísu.
  • Öflugt og samheldið teymi.
  • Gott vinnuumhverfi.
  • Stefna Innnes er að vera fjölskylduvænn vinnustaður og boðið er upp á ýmis fríðindi eins og heilsuræktarstyrk, samgöngustyrk, öflugt félagslíf og fleira. 
Advertisement published5. August 2026
Application deadline16. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Korngarðar 3, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags