
Lindaskóli
Lindaskóli er heildstæður grunnskóli fyrir börn frá 1. – 10. Bekk og er staðsettur við Núpalind 7.
Gildi Lindaskóla eru vinátta, virðing, viska og eiga þau að vera rauði þráðurinn í öllu starfi skólans. Í Lindaskóla er nemandinn í forgrunni í öllu skólastarfi. Leitast er við að skapa nemendum námsumhverfi þar sem hlúð er að hverjum einstaklingi og mismunandi þörfum þeirra. Í skólastarfinu er lögð áhersla á að allir nemendur fái nám við sitt hæfi. Lindaskóli leggur árherslu á að ná þessu markmiði með jákvæðu viðmóti og virðingu fyrir einstaklingnum
Stefna Lindaskóla er velgengi í skólastarfi, fagleg færni og metnaður. Starfsfólk Lindaskóla leggur mikla áherslu á að nemendum líði vel í skólanum og að nemendur leggi sig fram við námið og þau markmið og gildi sem skólinn setur sér.

Viltu koma og vinna á skólabókasafni ?
Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum um 460 nemendur í 1. -10. bekk og 90 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu. Hann leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt og tekur þátt í innleiðingu Barnasáttmálans. Virk heilsuefling er eitt einkenna skólans og hefur til margra ára verið í forystusveit skóla sem hafa tekið þátt í Skólahreysti. Mikil og góð samvinna er milli skólans og heimila í nærumhverfinu. Mikil áhersla er lögð á upplýsingatækni og fjölbreytta kennsluhætti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi til að ganga til liðs við okkur!
Starfslýsing:
- Aðstoð við lánþega og almenna þjónustu á bókasafni.
- Uppröðun og skráning bóka og annarra safngagna.
- Skipulagning viðburða og fræðslu á bókasafninu.
- Bókapantanir
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri safnsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennsluréttindi eru mikill kostur
- Menntun í bóksafnsfræðum eða annarri sambærilegri menntun er kostur
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
- Áhugi á bókmenntum og menningu er kostur.
- Almenn tölvukunnátta.
- Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi.
Advertisement published6. December 2024
Application deadline16. December 2024
Language skills
IcelandicRequired
Location
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Umsjónarkennari í 1. bekk
Hólabrekkuskóli

CityHost (receptionist)
CityHub Reykjavik

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Kennari óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Áfylling í verslanir og almenn lagerstörf.
TINNA heildverslun

Starfsmaður í hreinlætistækjadeild - BYKO Breidd
Byko

Dönskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla, afleysing í eitt ár.
Árbæjarskóli

Móttaka á þjónustuverkstæði - Bílaumboð Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt - Bílaumboð

Fulltrúi í þjónustu
Þjóðskrá

Viltu koma og starfa með geggjuðum hóp í Austurkór
Austurkór

Starfsmaður í mötuneyti ÁTVR
Vínbúðin