Rafal ehf.
Rafal ehf.
Rafal ehf.

Við leitum að rafmagnstækni- eða iðnfræðingi til að styrkja teymið okkar!

Við leitum að rafmagnstækni- eða iðnfræðingi til að styrkja teymið okkar. Starfsmaður tilheyrir teymi sem annast commissioning fyrir hönd Rafal og er í virkum samskiptum við verkefnastjóra, verkkaupa, framleiðendur og aðra þjónustuaðila. Starfið gefur tækifæri til að vinna með nýjustu kynslóð af rafbúnaði sem knýr AI- og HPC-innviði, í grein sem er í hraðri sókn bæði hér á landi og erlendis

Helstu verkefni og ábyrgð

• Utanumhald efnissamþykkta

• Utanumhald með frávikum og úrlausnum

• Gæðaeftirlit með teikningum og hönnunargögnum

• Gæðaeftirlit með smíði og uppsetningum á verkstað

• Umsjón með varðveislu gæðaskjala og prófunargagna

• Verksmiðjuprófanir (FAT) fyrir búnað sem Rafal afhendir verkkaupa

• Site Acceptance prófanir (SAT) á verkstað

• Forvirkniprófanir (Pre-Functional Testing)

• Virkniprófanir (Functional Testing)

• Samþættar virkniprófanir (Integrated Systems Testing)

Kerfin sem falla undir prófanir af hálfu Rafal eru há- og lágspennt rafkerfi, varaaflskerfi, stjórnkerfi og önnur kerfi sem tilheyra rekstri colo-gagnavera. Starfið hentar einstakling sem er skipulagður, með mikla öryggisvitund og er áhugsamur um rafbúnað og rekstur gagnavera.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • BSc rafmagnstæknifræði eða Iðnfræði
  • Sveinspróf í Rafvirkjun
  • Hæfni í greiningarvinnu og úrvinnslu gagna
  • Færni í skýrslugerð og framsetningu gagna
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Færni í samskiptum og teymisvinnu með tæknifólki og viðskiptavinum
Fríðindi í starfi

Kostir við að starfa hjá Rafal

  • Vandað og öruggt vinnuumhverfi
  • Tækifæri til að starfa við spennandi og krefjandi verkefni
  • Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins
  • Niðurgreiddur hádegisverður
  • Íþróttastyrkur
  • Árlegar heilsufarsmælingar

Rafal ehf. leggur sérstaka áhersla á rekstrarþjónustu, endurbætur og uppbyggingu háspennu- og lágspennukerfa fyrir raforkuöflun, flutning, raforkudreifingu og raforkuiðnað. Þetta á einnig við um dreifikerfi fjarskiptafyrirtækja.

Rafal er fjölskylduvænn vinnustaður og styður við að það sé jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Gildi Rafal eru: Hugrekki, Ástríða, Samstaða og Traust

Rafal hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Jakob Brynjar Sigurðsson, deildarstjóri, [email protected]

Advertisement published14. September 2026
Application deadline22. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hringhella 9, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags