HS Orka
HS Orka
HS Orka

Viðskiptastjóri verklegra framkvæmda

Viðskiptastjóri ber ábyrgð á að samningar í fjárfestingarverkefnum séu skýrir, mælanlegir og í samræmi við skilmála og stefnu og undirstefnur fyrirtækisins, svo sem í umhverfis- og öryggismálum.

Viðskiptastjóri heyrir undir svið sjálfbærni og aðfanga en vinnur náið með öllum sviðum fyrirtækisins og er hluti af verkefnateymum í framkvæmdarverkum. Viðskiptastjóri gegnir veigamiklu hlutverki við innleiðingu skilvirkra verkferla þar með eftirfylgni með tíma- og fjárhagsáætlunum sem og í samskiptum við verktaka og birgja þegar upp kemur faglegur ágreiningur í samningum.

Frekari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri, [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð
    • Móta samningastefnu í verkefnum.
    • Hafa yfirumsjón með gerð samninga.
    • Innleiða viðskipta- og samningsstjórnun hjá HS Orku.
    • Tryggja að samningar uppfylli skilyrði og stefnu HS Orku.
    • Tryggja að samningar séu mælanlegir, skýrir og í samræmi við samningsákvæði.
    • Ferla eftirfylgni með verk- og fjárhagsstöðu verkefna í rauntíma.
    • Greina tækifæri til framfara.
    • Túlkun samninga og samskipti við verktaka og birgja á verktíma.
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem hefur skilning á verklegum framkvæmdum og reynslu af gerð verksamninga og samninga um kaup á vélum og búnaði.  Viðkomandi þarf að hafa auga fyrir smáatriðum, vera lausnamiðaður, sjálfstæður, hafa þróað með sér öguð vinnubrögð og færni í samningatækni og eiga auðvelt að vinna í verkefnateymum.

Góð tungumálakunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg.

Menntun sem nýtist í starfi er nauðsynleg.

Advertisement published1. September 2026
Application deadline16. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Orkubraut 3, 240 Grindavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Contracts
Professions
Job Tags