Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi

Við leitum að kraftmiklum lögfræðingi

Viltu taka virkan þátt í að móta umgjörð sjávarútvegs á Íslandi og vinna að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í framsæknu og öflugu starfsumhverfi?

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) leita að öflugum lögfræðingi til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum tengdum málefnum sjávarútvegsins. Lögfræðingur SFS sinnir víðtækum verkefnum sem tengjast hagsmunagæslu, samningsgerð, túlkun laga og reglna, kjaramálum og samskiptum við stjórnvöld.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Lögfræðileg ráðgjöf, einkum á sviði fiskveiðistjórnunar, umhverfismála, vinnumarkaðs- og kjaramála
  • Samningsgerð og túlkun kjarasamninga
  • Gerð álitsgerða og umsagna um lagafrumvörp og reglugerðir
  • Ráðgjöf og stuðningur við félagsmenn SFS
  • Umsjón með kjaramálum sjómanna og fiskverkafólks í samstarfi við Samtök atvinnulífsins (SA)
  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á sviði vinnuréttar og sjávarútvegsmála
  • Samskipti við stjórnvöld og félagsmenn
  • Seta í nefndum og stjórnum á vegum SFS
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Fullnaðarpróf í lögfræði er skilyrði og lögmannsréttindi æskileg
  • Að lágmarki þriggja ára starfsreynsla við lögfræðistörf. Reynsla af lögmennsku er kostur
  • Þekking á vinnurétti, kjarasamningum og stjórnsýslurétti
  • Þekking á lagaumhverfi sjávarútvegs er kostur
  • Góð samningatækni og lausnamiðuð nálgun
  • Færni í markvissri og greinargóðri framsetningu upplýsinga í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæm vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna með öðrum
Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar
  • Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2025.
  • Sótt er um í gegnum alfred.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
  • Frekari upplýsingar veitir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, [email protected] 
  • Frekari upplýsingar um SFS má nálgast á www.sfs.is 
Advertisement published22. August 2025
Application deadline8. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 35, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags