
Pósturinn
Pósturinn er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í dreifingalausnum en dreifikerfi Póstsins nær um allt land og allan heim. Höfuðstöðvar Póstsins eru í Reykjavík en fyrirtækið starfrækir starfsstöðvar víðsvegar um landið til að þjónusta Íslendinga sem allra best.
Við hjá Póstinum erum lausnamiðað keppnisfólk og tökum fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum hvað varðar öflugar og hraðar dreifingalausnir sem standast kröfur viðskiptavinarins.
Hjá okkur er lagt mikið uppúr liðsheild, þjálfun mannauðs og góðum starfsanda.

Vestmannaeyjar - Bílstjóri afleysing
Pósturinn í Vestmannaeyjum leitar að kraftmiklum og ábyrgðarfullum einstaklingi til að sinna starfi bílstjóra í afleysingum á tímabilinu 1. mars til 31. ágúst 2026. Vinnutími er alla virka daga kl. 8:00-16:00.
Viðkomandi mun sinna akstri og dreifingu sendinga út frá pósthúsinu í Vestmannaeyjum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Meirapróf er mikill kostur.
Óskað er eftir því að ferilskrá fylgi umsóknum. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Erlingur í netfangi [email protected]. Vinsamlegast athugið að aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum umsóknarvefinn en ekki í tölvupósti.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bílpróf er skilyrði
- Íslensku- og enskukunnátta
- Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
- Lausnamiðuð hugsun og jákvætt hugarfar
- Almenn tölvukunnátta
Advertisement published11. February 2026
Application deadline20. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishOptional
Location
Strandvegur 52, 900 Vestmannaeyjar
Type of work
Skills
Driver's licenceConscientiousCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Meiraprófsbílstjóri á Akureyri
Samskip

Meiraprófsbílstjóri á Egilsstöðum
Samskip

Meiraprófsbílstjórar
EAK ehf.

Whisper & Service Agent
Your Friend In Reykjavik

Bílstjóri
Kjarnavörur hf

Sumarstörf í vöruhúsum Distica
Distica

Fulltrúi í akstursdeild
Brimborg

Bílstjóri / Driver
Bus4u Iceland

Meiraprófsbílstjóri hjá Eimskip Selfossi
Eimskip

Spennandi sumarstörf um allt land
Eimskip

Bílstjóri með meirapróf
Vatnsvirkinn ehf

Meiraprófsbílstjóri - Framtíðarstarf
Fóðurblandan