

Meiraprófsbílstjóri hjá Eimskip Selfossi
Eimskip Selfossi leitar að þjónustuliprum og ábyrgum meiraprófsbílstjóra í fullt starf í vörudreifingu á hraðvaxandi starfssvæði Eimskip á Selfossi. Starfsstöðin sinnir dreifingu á suðurlandi út frá Háheiði 8 á Selfossi.
Reglulegur vinnutími er 8-16 á virkum dögum. Möguleiki á yfirvinnu/helgarvinnu á álagspunktum þegar svo ber undir.
Hjá Eimskip á suðurlandi starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum til viðskiptavina á suðurlandi.
Hjá Eimskip á suðurlandi er nýlegur floti flutningabíla sem er vel viðhaldið og allur aðbúnaður til fyrirmyndar. Mikil áhersla er á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip.
Í boði er heitur matur í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks þar sem markvisst er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun að jafnri stöðu óháð kyni og leitast eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast.
- Akstur flutningabíla, lestun og losun
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi störf
- Meirapróf (CE) er skilyrði
- Lyftararéttindi (J) er kostur
- ADR réttindi er kostur
- Góð íslenskukunnátta er æskileg
- Geta til að vinna undir álagi
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
English
Icelandic










