
Góði hirðirinn
Markmið Góða hirðisins er að endurnýta nytjahluti til áframhaldandi lífs og við tökum vel á móti viðskiptavinum okkar. Ágóði af sölu nytjarhluta í Góða hirðinum rennur til góðgerðarmála, úthlutun fer fram einu sinni til tvisvar á ári.

Verslunarstjóri Góða hirðisins
Við leitum að drífandi og skipulögðum einstaklingi til að stýra verslun Góða hirðisins og stuðla að aukinni endurnotkun. Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri verslunarinnar, tryggir að hún sé vel skipulögð, snyrtileg og örugg ásamt því að sjá um að verðlagning og frágangur muna sé í góðu horfi. Verslunarstjóri tryggir að starfsmenn fái viðeigandi þjálfun og stuðlar að góðri upplýsingamiðlun.
Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt starf í kraftmiklu og lifandi umhverfi. Sendu inn umsókn og vertu hluti af frábæru teymi Góða hirðisins!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á daglegum rekstri, skipulagi og mönnun
- Innkaup á rekstrarvörum
- Umsjón með kassakerfi og frágangur uppgjörs
- Samskipti við utanaðkomandi aðila
- Viðhalda góðu þjónustustigi verslunar
- Tryggja að öryggismálum sé fylgt eftir og vinna að stöðugum umbótum
- Tryggja vinnusemi, jákvæðni og hvetja starfsmenn áfram
- Vera leiðbeinandi og sýna frumkvæði við endurnýtingu og flokkun endurvinnsluefna
- Stuðla að góðu samstarfi og samskiptum við önnur teymi Góða hirðisins
- Sinna tilfallandi verkefnum sem tilheyra starfsstöðinni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynslu af verslunar og/eða þjónustustörfum
- Reynsla af afgreiðslukerfum er kostur
- Hafa ríka öryggisvitund og sýna hana í verki
- Eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar og sýna sjálfstæði
- Hafa mikla hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfi og góð þjónustulund
- Sjálfstæði, frumkvæði, metnaður og öguð vinnubrögð
- Hafa góða tölvufærni, þ.m.t. á Office, SharePoint og BusinessCentral
- Hafa áhuga á hringrásarhagkerfinu og endurnýtingu
- Líkamlegur styrkur er skilyrði
- Hafa gott vald á íslensku og ensku
Advertisement published11. June 2025
Application deadline22. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Köllunarklettsvegur 1, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PositivityHuman relationsMicrosoft Dynamics 365 Business CentralSharePointIndependencePlanningCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsfólk í verslun - Kauptún - fullt starf
ILVA ehf

Starfsfólk í verslun í Kauptúni - helgar/hlutastarf
ILVA ehf

Hlutastarf í Fiskverslun, Möguleiki á fullt starf
Fiskur og félagar ehf.

Snyrtivöruráðgjafi í nýrri L’Occitane & SkincareLab verslun í Smáralind
L'Occitane & SkincareLab

Snyrtivöruráðgjafi óskast í L’Occitane verslun í Kringlunni
L'OCCITANE EN PROVENCE

Starfsmaður í verslun og á lager í Rvk
M fitness

Starf í framleiðslu- og merkingardeild
Innnes ehf.

Hlutastarf - söluráðgjafi
Húrra Reykjavík

Verslunarstjóri Icewear
ICEWEAR

Sölustarf í fiskbúð & þrif
Fylgifiskar ehf

Umsjónarmaður vefverslunar NTC
NTC ehf

Verslunarstjóri í sýningarsal
Bako Verslunartækni