Verkstjóri - Vöruhús BYKO Miðhrauni
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að sinna starfi verkstjóra í nýja vörhúsi okkar að Miðhrauni.
Nýtt vöruhús BYKO mun vera byggt upp með nýjustu tækni í vöruhúsarekstri sem kallast Autostore. Hér er því einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á framsæknum vöruhúsaresktri sem fullnýtir möguleika tækninnar í átt að aukinni skilvirkni.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita af þér.
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af stýringu hóps
- Ríka þjónustulund
- Skipulagshæfni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- lyftarapróf, kostur
- Íslenskukunnátta, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Dagleg stýring á starfsfólki svæðis og úthlutun verkefna
- Tryggir að þjónustuviðmót og klæðnaður starfsfólks í sínum deildum sé í samræmi við stefnu félagsins
- Ber ábyrgð á mönnun hússins og utunumhald með fjarveru í samstarfi við aðra stjórnendu
- Viðheldur og mótar verkferla í samstarfi við starfsfólk og rekstrarstjóra
- Samskipti við söluaðila, viðskiptavini, verslanir o.s.frv.
- Eftirlit með birgðum og rýrnun á svæði ásamt þátttöku í sítalningum
- Tekur á móti og vinnur úr kvörtunum viðskiptavina
- Ábyrgð á tæki, tól, svæði og nærumhverfi sé hreint og snyrtilegt
- Yfirumsjón með öryggis- og vinnuvernd á svæði í samstarfi við rekstrarstjóra og öryggis- og eftirlitsdeild
- Annast önnur verkefni og viðfangsefni hverju sinni samkvæmt beiðni/fyrirmælum yfirmanns eða þeim er hann tilnefnir
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 20. október en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Steinn Guðni Einarsson, (steinn@byko.is) rekstrarstjóri.