Umbúðamiðlun
Umbúðamiðlun
Umbúðamiðlun

Verkstjóri brettadeildar

Umbúðamiðlun leitar að öflugum og ábyrgum verkstjóra til að stýra nýrri brettadeild félagsins. Við leitum að skipulögðum einstaklingi sem hefur góða stjórnunarhæfileika, á auðvelt með samskipti og er tilbúinn að taka virkan þátt í daglegum verkefnum deildarinnar.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með daglegum rekstri brettadeildar
  • Verkstjórn og skipulagning verkefna starfsmanna
  • Starfsmannahald
  • Stýring og skipulagning verkefna bílstjóra
  • Móttaka og skráning pantana
  • Samskipti við viðskiptavini og birgja
  • Eftirlit með birgðastöðu og tryggja að nauðsynleg aðföng séu ávallt til staðar
  • Þátttaka í þróun brettadeildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verkstjórn, lagerstarfsemi, flutningum eða sambærilegum rekstri er æskileg
  • Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar
  • Frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í starfi
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Geta til að vinna undir álagi og bregðast hratt við breyttum aðstæðum
  • Almenn tölvukunnátta 
  • Góð íslensku og enskukunnátta
  • Lyftara- og/eða meiraprófsréttindi eru kostur
Advertisement published15. September 2026
Application deadline30. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Holtavegur 8, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags