
FSRE
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) er opinber stofnun sem hefur það hlutverk að þróa og reka aðstöðu á vegum ráðuneyta, stofnana og annarra ríkisaðila með hagkvæmum, vistvænum og ábyrgum hætti.
FSRE ber ábyrgð á skipulagningu, þróun, nýtingu og rekstri fasteigna í eigu íslenska ríkisins. Fasteignasafn ríkisins er eitt af stærstu fasteignasöfnum landsins með um 530 þúsund fermetrum húsnæðis. Stofnunin leigir þar að auki um 100 þúsund fermetra húsnæðis á almennum markaði til framleigu fyrir stofnanir og ráðuneyti. Jarðasjóður, sem einnig er hluti af FSRE, heldur utan um eignarhald og umsýslu á um 380 jörðum og jarðeignum ríkisins með það að markmiði að nýta land og auðlindir á ábyrgan og sjálfbæran hátt.
Um þessar mundir vinnum við að um 130 þróunarverkefnum sem snerta flest svið mannlífsins; s.s. heilbrigðis- og velferðarmál, menningu, menntun, löggæslu, dómskerfi, náttúru og friðlýst svæði. Framundan eru spennandi tímar í þróun sameinaðrar stofnunar. Við leitum því að jákvæðu og drífandi fólki sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í vegferðinni með okkur.
Verkefnastjóri - viðhaldsáætlanir
Hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum (FSRE) er viðhald stærsta fasteignasafns landsins skipulagt af fagmennsku og fyrirhyggju. Nú leitum við að verkefnastjóra í teymi sem greinir ástand og viðhaldsþörf eigna ríkisins og forgangsraðar verkefnum svo eignir haldi verðgildi sínu og nýtist sem best.
Sem verkefnastjóri stýrir þú úttektum á ástandi fasteigna, gerð skammtíma- og langtímaáætlana um viðhald, þróun á verklagi og viðmiðum við ástandsmat. Þú berð ábyrgð á útboðum og samningum um ástandsmat og vinnur náið með eignastýringu, þjónustuborði og forsvarsmönnum stofnana. Safnið telur 530 þúsund m² í 380 eignum um allt land, svo verkefnin eru fjölbreytt og ná til flestra sviða samfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórn við greiningu á viðhaldsþörf eigna ríkisins
- Umsjón með úttektum á ástandi fasteigna, mati á viðhaldsverkefnum og forgangsröðun þeirra
- Gerð skammtíma- og langtímaáætlana um viðhald eigna
- Þróun verklags og viðmiða við gerð ástandsmats
- Gerð útboðsgagna, innkaup og rekstur samninga um ástandsmat í samvinnu við innkaupasérfræðinga
- Samstarf við eignastýringu um forgangsröðun eigna og verkefna
- Samstarf við þjónustuborð um greiningu beiðna
- Samskipti við forsvarsmenn stofnana og notenda í samráði við viðskiptastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Góð þjónustulund
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
- Lausnamiðað viðhorf og hæfni í lausn ágreinings
- Góð færni í að forgangsraða verkefnum og skila árangri í kviku starfsumhverfi
- Stafræn færni, geta til að vinna með gögn og læra á ný tölvukerfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Eftirfarandi telst til kosta
- Víðtæk reynsla í mannvirkjagerð
- Iðnmenntun og reynsla af viðhaldsframkvæmdum
- Reynsla í umsjón fasteigna, útboðsmálum, innkaupum og rekstri samninga
Advertisement published11. September 2026
Application deadline25. September 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
Project management
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (8)

Leiðtogi í umhverfis- og skipulagsmálum
Sveitarfélagið Hornafjörður

Aðstoðarrekstrarstjóri
Flatey Pizza

Verkefnastjóri á verkefnastofu
Landspítali

Verkefnastjóri sorpbrennslu og orkuframleiðslu
Kalka

Verkefnastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta
Miðstöð íslenskra bókmennta

Verkefnastjóri í Skólabúðum UMFÍ
UMFÍ

Verkefnastjóri með reynslu í hvata- og viðburðateymi
Atlantik

Shift Manager
Bus4u Iceland