
Eskja Vinnsla ehf.
Eskja er fjölskyldufyrirtæki á Eskifirði sem hefur verið leiðandi afl í íslenskum sjávarútvegi síðustu 70 árin. Fyrirtækið hét áður Hraðfrystihús Eskifjarðar og var stofnað 8. maí 1944 í því skyni að skjóta styrkum stoðum undir fábreytilegt atvinnulíf bæjarins. Stofnendur félagsins voru um þrjú hundruð einstaklingar og fyrirtæki á staðnum. Alla tíð síðan hefur Eskja verið kjölfestan í atvinnulífi Eskifjarðar. Félagið hefur vaxið og dafnað í áranna rás og starfsmenn fyrirtækisins eru í dag um 100 talsins. Markmið okkar er að standa í fremstu röð, nota ávallt bestu framleiðslutækni sem völ er á og framleiða hágæðavörur úr íslenskum fiski fyrir kröfuhörðustu markaði heims. Þá leggjum við einnig ríka áherslu á fræðslu og endurmenntun starfsfólks okkar. Eskja hefur frá fyrstu tíð haft það að leiðarljósi að umgangast fiskimiðin umhverfis Ísland af ábyrgð og virðingu, í samræmi við lög og reglur og að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar.
Verkstjóri í uppsjávarvinnslu – Eskju
Eskja leitar að öflugum og metnaðarfullum Verkstjóra til starfa í uppsjávarvinnslu félagsins á Eskifirði. Um er að ræða krefjandi og spennandi starf í framsækinni matvælaframleiðslu þar sem lögð er áhersla á gæði, fagmennsku og gott samstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og skipulagning daglegrar vinnu í uppsjávarvinnslu
- Umsjón með móttöku og vinnslu hráefnis, vigtun og skráningu
- Skipulag og eftirfylgni með framleiðslu samkvæmt áætlunum
- Skjót úrlausn rekstrar- og framleiðsluvandamála í samstarfi við viðhaldsteymi
- Tryggja að verklag, gæðakröfur og öryggisreglur séu virtar
- Stjórnun, hvatning og þróun starfsfólks
- Eftirlit með tímaskráningum, mætingum og leyfistöku
- Samvinna við gæðaeftirlit varðandi þrif, hreinlæti og afurðagæði
- Skráningar og eftirfylgni í rekstrarkerfum (m.a. Innova)
- Þátttaka í gæðastarfi, sannprófunum og vottunum (m.a. MSC)
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af stjórnun eða verkstjórn í framleiðslu eða vinnslu
- Góð þekking á framleiðsluferlum og tæknilegum búnaði
- Leiðtogahæfni og sterk samskiptahæfni
- Skipulagshæfni og geta til að leysa vandamál hratt og markvisst
- Góð tölvukunnátta og reynsla af rekstrar- eða framleiðslukerfum
- Góð færni í ræðu og riti á íslensku og/eða ensku
Advertisement published23. March 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Eskifjörður , 735 Eskifjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Hjúkrunarfræðingur á Brjóstamiðstöð
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - dagvinna á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtar
Landspítali

Heimastuðningur Norðurmiðstöð sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Framtíðarstarf í Fiskeldi
Stolt Sea Farm Iceland hf

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lungna A3
Landspítali

Sjúkraliði - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu
Landspítali

Starfsmaður í viðhaldsdeild – Uppsjávarvinnslu Eskju
Eskja Vinnsla ehf.

Skemmtilegt sumarstarf á íbúðarkjarna í breiðholtinu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT Bókað ehf á Sauðárkrók
ECIT ehf.

Starfsmaður í gas- og jarðgerðarstöð SORPU
SORPA bs.

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild ofnæmislækninga
Landspítali