Eskja Vinnsla ehf.
Eskja Vinnsla ehf.
Eskja Vinnsla ehf.

Starfsmaður í viðhaldsdeild – Uppsjávarvinnslu Eskju

Eskja óskar eftir að ráða starfsmann í viðhaldsdeild uppsjávarvinnslu félagsins á Eskifirði. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu teymi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, öryggi og stöðugan rekstur vinnslunnar.

Nánari upplýsingar

Hlynur Ársælsson, rekstrarstjóri uppsjávarvinnslu
✉️ [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Viðhald og viðgerðir á vélum og búnaði í uppsjávarvinnslu
  • Eftirlit með búnaði og bilanagreining
  • Samvinna við framleiðslu- og viðhaldsteymi
  • Þátttaka í fyrirbyggjandi viðhaldi og umbótaverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í vélvirkjun eða rafvirkjun er kostur
  • Reynsla af viðhalds- eða tæknistörfum er kostur
  • Þekking á vélum, rafbúnaði og tækjabúnaði
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að starfa í teymi
  • Dugnaður, vinnusemi og jákvætt viðhorf
Advertisement published17. March 2026
Application deadline31. March 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Eskifjörður , 735 Eskifjörður
Type of work
Professions
Job Tags