

Verkstjóri í áhaldahús Borgarbyggðar
Sveitarfélagið Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar 100% starf verkstjóra í áhaldahúsi. Leitað er eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Verkstjóri sinnir fjölbreyttum verkefnum í samráði við rekstrarstjóra áhaldahússins sem snýr að umhverfis og ásýnd sveitarfélagsins. Megin verkefni áhaldahússins eru framkvæmdir vegna viðgerða á götum og gangstéttum, vetrarþjónusta, umhirða á opnum svæðum o.fl.
Starfið krefst góðrar samvinnu og samstarfs við rekstrarstjóra áhaldahúss og starfsmenn sveitarfélagsins, stofnanir þess, sem og íbúa, iðnaðarmenn, verktaka, opinbera aðila og aðra er málið varðar. Verkstjóri hefur umsjón með árstíðabundnum verkefnum og er staðgegnill rekstrarstjóra í fjarveru hans.
- Umhirða og hreisnun opinna svæða.
- Vetrarþjónusta sveitarfélagsins, snjómokstur og söltun.
- Viðhald og minni viðgerðir á tækjum, vinnuvélum og áhöldum áhaldahússins.
- Viðhald gatna, gangstétta, umferðamannvirkja, gönguleiða og annarra verklega framkvæmda.
- Flutningur og þjónusta við stofnanir sveitarfélagsins.
- Utanumhald um tækjaþjónustu á vegum sveitarfélagsins.
- Önnur tilfallandi verkefni.
- Ríkuleg þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Gilt ökuskírteini
- Áhersla lögð á vandvirkni og nákvæmni í öllum störfum
- Hæfni til að starfa sjálfstætt, skipulagshæfileikar og nákvæmni við skráningu gagna
- Framúrskarandi íslenskukunnátta og góð enskukunnátta.
- Hreint sakavottorð.













