Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Verkstjóri á Akureyri

Starf verkstjóra við þjónustustöðina á Akureyri er laust til umsóknar. Þjónustustöð sér um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á svæðinu. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöðinni og sér til þess að þau séu unnin í samræmi við áætlanir og öryggisstefnu Vegagerðarinnar. Verkstjóri er staðgengill yfirverkstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn þjónusta, eftirlit og verkstjórn í viðhaldi vega og vegbúnaðar á svæði þjónustustöðvarinnar. 
  • Eftirlit í vetrarþjónustu með færð á vegum, upplýsingagjöf og stjórnun snjómoksturs í samvinnu við yfirverkstjóra og vaktstöð Vegagerðarinnar.
  • Vinnur bakvaktir í vetrarþjónustu utan dagvinnutíma frá október-apríl og er aðgengilegur ef þörf skapast, s.s. vegna veðurs, náttúruhamfara og slysa.
  • Samskipti og eftirlit með verktökum.
  • Gætir að öryggi starfsfólks þjónustustöðvar og vegfarenda á vinnusvæðum og fylgir öryggisreglum þar að lútandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Almennt grunnnám, iðnmenntun æskileg 
  • Reynsla af stjórnun æskileg
  • Verkstjórnarnámskeið eða sambærilegt er æskilegt
  • Meirapróf og/eða vinnuvélaréttindi æskilegt
  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
  • Góð öryggisvitund
Advertisement published15. May 2025
Application deadline26. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags